Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
29.4.2009 | 22:57
Starfsmenn bankanna gáttaðir á hversu lítið er gert fyrir heimilin!
Eftir að hafa skrifað undir skuldbreytingar á íbúðarlánum þar sem lengt var í hengingarólinni barst tal almennt að úrræðum bankanna til heimilanna. Sem þjónustustjóri bankans fullyrti hann að það væri ekkert annað en sorglegt að sjá hversu lítið er gert fyrir trausta viðskiptavini sem eru kominir í greiðsluþrot og ná ekki endum saman. "Frá því að hrunið varð opinberlegt hefur ekkert gerst nýtt sem ekki var gert fyrir hrun og skiptir sköpum fyrir heimilin". Möguleikarnir eru fáir sem engir og fólk sem alltaf hefur staðið í skilum fá einungis skammtíma úrlausnir. Það sorglega er að bankarnir eru í raun að græða á úrræðaleysi fjölskyldna og hlægja að okkur. Hvernig get ég fullyrt svona? Jú, lesið eftirfarandi samantekt frá manni sem heitir Jón Reynir Vilhjálmsson sem er byggð á staðreyndum en ekki pólitísku eða hagfræðilegu spámensku blaðri;
Á síðustu vikum hafa greiðsluerfiðleikar heimilanna v. myntkörfulána
til húsnæðiskaupa verið mikið til umræðu.
Í framhaldi af þessari umræðu er hér greining á myntkörfuláni og
sundurliðun afborgana, en ekki er allt sem sýnist í þeim efnum.
Myntkörfulán er byggt upp af einni eða fleiri myntum, algeng
samsetning er t.d 50%japanskt yen (JPY) og 50% svissneskur franki
(CHF) sem við tökum hér sem dæmi.
Vextir myntkörfulána ávarðast af millibankavöxtum sem eru nefndir
Libor-vextir (London Interbank Offered Rate) og vaxtaálagi viðkomandi
lánastofnunar ofáná libor-vextina.
Libor-vextir eru síðan breytilegir dag frá degi.
Á árunum 2004-2007 voru íslenskir bankar að fá lán erlendis frá á
Libor-vöxtum + 0.2% (20punkta álag). Algengt var að íslensku
bankarnir lánuðu síðan út á Libor-vöxtum + 1.7% - 4.0% vaxtaálagi en
það var breytilegt eftir veðsetningarhlutfalli og einnig breytilegt á
milli banka.
Við tökum hér dæmi um mánaðarlegar afborganir af 20 Miljóna kr. láni
með 2.4% vaxtaálagi banka. Af láninu var fyrst greitt af 1.12.2006.
Lán 40 ár1.12.2006
Upphæð/Staða20,000,000 kr.
Greiðsla af Libor-vöxtum19,250 kr.
Greiðsla af vaxtaálagi banka40,000 kr.
Greiðsla af höfuðstól41,667 kr.
Samtals100,917 kr.
Hér var greitt 100,917 kr. af láninu, þóknun bankans 2.4% eða 40,000Kr.
Við skulum skoða samsetningu afborgunar af sama láni 01.04.2009, en
það hefur hækkað í tæpar 40 miljónir v. gengisfalls krónunnar
Lán 40 ár1.4.2009
Upphæð/Staða39,966,985 kr.
Greiðsla af Libor-vöxtum10,824 kr.
Greiðsla af vaxtaálagi banka79,934 kr.
Greiðsla af höfuðstól83,265 kr.
Samtals174,023 kr.
Hér var geitt 174,023kr af láninu, þóknun bankans 2.4% eða 79,934 Kr.
Hér hafa libor-vextir lækkað en mjög stór hluti af afborgunni er að
fara í vaxtaálag til bankans sem hefur hækkað næstum um 100% í krónum
talið.
Bankinn er að hagnast griðalega á gengisfalli krónunnar!
Til hjálpar hafa bankarnir verið svo greiðviknir að frysta höfuðstól
þannig að það þurfi aðeins að greiða vexti um sinn. Tökum þannig dæmi
fyrir afborgun 1.4.2009.
Lán 40 ár1.4.2009
Upphæð/Staða39,966,985 kr.
Greiðsla af Libor-vöxtum10,824 kr.
Greiðsla af vaxtaálagi banka79,934 kr.
Greiðsla af höfuðstól0 kr.
Samtals90,758 kr.
Hér var greitt 90,758 af frystu láninu. Það er athyglivert að í
afborguninni á frystu láni þar sem aðeins eru greiddir vextir 1.4.2009
eru aðeins 10.824 kr. að fara í libor-vextina, 79.934kr fara í vaxtálag
til bankans sem dugar næstu fyrir höfuðstólsgreiðslunni! (Kannski ekki
skrýtið að bankinn geti boðið þetta)
Tökum dæmi um ámóta lán tekið í Finnlandi fyrir 3 árum. Það er eins
byggt upp þ.e. libor-vextir + vaxtaálag banka. En það er athyglivert
að vaxtaálag bankans þar er aðeins 0.35%
Hér er dæmi um hvernig þetta liti út ef vaxtaálagið væri það sama og
í Finnska bankanum 0.35%.
Lán 40 ár - Finnland 1.4.2009
Upphæð/Staða39,966,985 kr.
Greiðsla af Libor-vöxtum10,824 kr.
Greiðsla af vaxtaálagi banka11,657 kr.
Greiðsla af höfuðstól83,265 kr.
Samtals105,746 kr.
Hér er þóknun bankans 0.35% eða aðeins 11,657Kr. í stað 79.934 miðað
við 2.4% álag.
Hér kemur yfirlit á sundurliðun mánaðarlegra afborgana og samanburður á
ef lánið hefði verið tekið í Finnlandi á sama tíma.
Niðurstaðan er að myntkörfulán eru ekki vandamálið heldur óeðlilegt
vaxtaálag íslenskra banka ofan á Libor-vexti. Af hverju þurftu
íslenskir bankar 1.7% - 4% vaxtaálag á meðan Finnsku bankarnir þurftu
aðeins 0.35%.
Íslenskur bankarnir fengu þessi lán með Libor-vöxtum + 0.2% (20punkta
álag) eins og þeir Finnsku!
Í dag er verið að bjóða upp á kosti til hjálpar fólki í
greiðsluerfiðleikum. Allir þeir kostir ganga útá að greiðslur lækki
en á móti að lánin lengist.
Einfalt kerfi til hjálpar lántakendum:
Til að koma á móts við lántakendur ættu bankarnir að lækka vexti um
1.2 - 2% sem yrðu þá sambærilegir í öðrum löndum. Ríkið ætti að vera í
aðstöðu til þess að kom því í framkvæmd þar sem það hefur yfirtekið
flesta íslenska banka.
Sömu vaxtalækkun mætti nota á vexti íslenskra vísitölutengdra lána, það
myndi lækka greiðslurnar af þeim verulega til lengri tíma litið.
Kveðja
Jón Reynir Vilhjálmsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þá er þessum kosningum lokið og nýir tímar framundan. Nú reynir á að þingliðið vinni hratt og vel. Skerða þarf sumarfrí þingmanna til að geta klárað dæmið. Heimilin öskra á hjálp og réttlæti. Vörur og þjónusta hefur hækkað á sama tíma og launþegar hafa þurft að taka á sig tekjuskerðingu.
Einnig hefur fasteignaverð lækkað og mun lækka meira á meðan lánin hækka.
Hagur fjölskyldna og fólks í landinu er hrikalegur. Leiðrétting á höfuðstól er forgangsatriði ásamt niðurfelling verðtrygginga. Ef það er ekki mögulegt að mati nýrrar stjórnar þarf að verðtryggja laun strax. Gengistryggð lán þurfa að færsta yfir í íslenskar krónur miðaða við það gengi sem lánin voru tekin og endurreiknuð út frá hefðbundnum hætti. Þannig geta heimilin tekist á við íbúðarlánin sín og lagað sína stöðu gangvart bílalánum. Þannig geta heimilin haldið áfram að berjast.
Lög um vaxtaþak verðtryggðra lána verður að klára og hafa hámark 2%. Óverðtryggð íbúðarlán aldrei meiri en 2% umfram verðbólgu.
Íslensku krónuna verðum við að losa okkur við, því miður. Árið 1912 var ein ísl. króna = ein dönsk. Árið 1981 var síðan gengisfelling því þá var illt í efni og gengisfelling ákveðin, staðan var 20 ísl króna = ca. 1 dönsk. Þannig eftir gengisfellingu 1981 varð 1 ísl. króna = 1 dönsk.
Í dag, enn á ný er 23 ísl. króna = 1 dönsk. Hvað á þá að gera? Íslensk króna er og verður aldrei gjaldmiðill til framtíðar.Hvort sem við þurfum ESB aðild eða ekki, þá þarf einfaldlega að skipta um mynt.
Vextir eru að drepa mörg fyrirtæki og þá þarf að laga á morgun!
Eins og ég segi eru málefnin mörg og þola enga bið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.4.2009 | 12:16
Hefði mátt fara öðruvísi - en úrslitin nokkuð góð.
Sjálfstæðismenn bjuggust við falli en miðað við þær árásir og umfjöllun um flokkinn þykir mér niðurstaða þeirra ásættnaleg. Að sjá Framsókn og Borgaraflokkinn svona öfluga er bara gleðiefni. Gaman verður að fá Guðmund Steingríms upp í pontu og treysti ég á að hann glati ekki húmornum. Ef vinstri grænir og Samfylking hefði einhvern tíma átt að vinna STÓRSIGUR þá var það í þessum kosningum, en að mínu mati gerðist það ekki. Það er hinsvegar dapurt að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að hafa Árna Johnsen þarna inni. Þá vona ég að Framsókn standi sterkur og berjist fyrir sínum málum.
Hinsvegar er forgangsmál að ganga að lækkun vaxta, hjálpa heimilunum og láta hendur standa fram úr ermum.
Má segja að þetta verður áhugavert kjörtímabil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2009 | 13:02
Kjósum fyrir hagsmunum heimilanna!
Nú er komið að stórum degi þar sem örlög fjölmargra heimila ráðast. Mikið ósköp vona ég að sem flestir hugsi sig vel um og kjósi ekki "sinn" flokk að gömlum vana. Kostirnir snúast einnig um að að byggja upp flokka á þingi sem hefur ekki endilega sterkan meirihluta heldur einnig flokka sem sem gegna oddastöðu. Skoðanakannanir benda til þess að Samfylkingin fái góðan stuðning sem og Vinstri Grænir. Ef það verður lendingin eftir þetta allt saman vona ég að þeir haldi ekki sínu striki gangvart svokölluðum greiðsluaðlögunum fyrir heimilin í landinu sem er ekkert annað en framlenging á vandamálum þó svo að endar komi til með að nást saman um hver mánaðarmót yfir eitthvert tímabil. Það er skylda þeirra sem koma til með að stjórna landinu að koma með lausn til framtíðar. Slíkar aðgerðir koma þannig til með að hafa áhrif á væntingarvísitölu sem eru okkur öllum til góða. Ég hvet þig til þess að slást í hópinn hjá Hagsmunasamtökum Heimilanna, www.heimilin.is, þar sem málefnin eru í fyrirúmi og færustu sérfræðingar á hverju sviði meta lagagildi aðgerða lánveitanda og leggja mat á þeim lausnum sem koma fram að hálfu stjórnvalda hverju sinni.
Kjósum fyrir hag heimilanna, það kemur okkur öllum til góða.
Kjóstu rétt, ekki skila auðu!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2009 | 00:17
Vaknaði með ekkert höfuðleður!
Það er ein af óþægilegustu upplifunum að eiga slæma drauma og vakna skelfingu lostin. En sem betur fer bráðnar örvænting slíkra drauma fljótt af manni. Hinsvegar virðist svo sem að einskonar öðruvísi tilfinning vera þegar maður sér hálfgerða martröð nálgast mann hægt og rólega, og það með fullri meðvitund. Heimilin í landinu öskra á réttlæti. Samkvæmt orðum Samfylkingar og Vinstri grænna er hagur heimila ekki í forgang á næsta kjörtímabili heldur niðurskurður og innganga í ESB. Hagsmunasamtök Heimilanna eru og munu berjast fyrir hag heimilanna og þar er mikilvægasti þátturinn réttur til þess að eignast fasteign. Næstu málefni snúast að bílalánum, lægra verði á matvælum og að öðrum mikilvægum og þungum útgjöldum heimilanna. Við höfum tæpan sólahring til að ákveða okkur og tel ég mikilvægast að við skilum ekki auðu.
Vonandi dreymir okkur vel í nótt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2009 | 22:43
Fólkið sem sukkaði í góðærinu..
...var ein af fyrirspurnum á þeim borgarafundi sem var í beinni í kvöld á Rúv. Spurningunni var beint að framsókn. Þá var spurt hvort þessi 20% niðurfelling (leiðrétting) á höfuðstól íbúðarlána sé ekki bara aðgerð til þess sköpuð til þess að hjálpa fólkinu sem "sukkaði" í góðærinu. Þá er spurning hvort ung hjón sem fengu 80% lán í erlendri mynt fyrir sinni fyrstu íbúð í janúar (áttu 3.000.000 í sparifé) og eru nú í þeirri stöðu að lánið hefur tvöfaldast vegna óreiðu og brjálæðis á lánveitanda í landinu að það sé "fólk sem sukkaði í góðærinu"? Hún spyr hvaðan þeir aurar eiga að koma? Þá er best að spyrja; hvaðan komu peningarnir sem hækkuðu höfuðstól verðtryggðra og erlendra íbúðarlána? Er ekki best að skila þeim peningum þaðan sem þeir komu og heimta leiðréttingu? Er fólk ekki að ná því að hækkun á höfuðstól er ósanngjarn á alla kanta og gervi peningur.
Það var líka ósanngjarnt að fólk tapaði milljónum á sparnaði við bankahrunið en gleymum því ekki að réttur til þess að geta átt heimili er eitt af grundavallaratriðum samfélagsins því er það hagsmunarmál allar heimila að krefjast frekari jafnvægis milli lántaka (heimilin) og lánveitanda (bankanna).
Þannig tel ég ekki óeðlilegt að það séu sett lög að lánveitendur sem kjósa að lána með verðtryggingu mega ekki hafa yfir 2% vexti. Annað er rán. Hinsvegar geta bankar lánað (selt) pening á hvaða verði sem er án verðtryggingar.
Svona til gamans þá er Rússnenska mafían þekkt í sínu landi fyrir okulánastarfsemi og samkvæmt þeim sem til þess þekkja er vextirnir 17%, óverðtryggðir :-)
Kjósum leiðréttingu á lánum. Hugum að taka upp alþjóðlegan gjaldeyri. Hugum að því að koma hjólum viðskiptalífsins í gang og náum þannig fram auka tekjum. Sem dæmi þá er eðlileg endurnýjun á bílaflota íslendinga á milli 6000 til 10.000 nýir bílar á ári. Vegna óttans og aðstæðna er líklegt að í ár munu seljast ca. 1500-2000 bílar. Þarna vantar upp á mikið magn. Af hverjum bíl sem selst á ca. kr. 2.300.000 fáum við í ríkisjóð rúmar kr. 900.000 í tollum og gjöldum. Margfaldið 5000 bíla með 900.000 og milljarðarnir eru nálægt fimm. Þá er ég líka að reikna ódýran bíl miðað við gengi dagsins.
Hvað sem þessi líður þá eru aðstæður nú jafnóeðlilegar og þær voru í "góðærinu". Við þurfum stöðugleika og jafnvægi í neyslu og efnahagskerfið. Annars er ekki hægt að búa á landinu til lengdar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Flestir af stjórnmálaflokkunum vilja og berjast fyrir auknum tekjum í kassa ríkissjóðs sem er ábyrg hugsun. Þá eru til nokkrar leiðir. Auðveldasta leiðin er að hækka skatta og gjöld. Nú þegar matarpokinn er á ca. 7000 kr., bílalánin út úr öllu korti, og annar fastakostnaður heimilanna að gera okkur öll brjáluð er þá aukin skattbyrgði lausn sem við þurfum? Ef við viljum það erum við að setja samþykki fyrir því að almenningur eigi að borga fyrir brjálæði í of-fjárfestingum fárra auðmanna. Önnur úrræði í tekjuaukningu er að ýta við tekjupóstum ríkisjóðs (vsk, innflutningsgjalda, tolla o.fl.). Til þess að svo gerist þarf að ýta við efnahagslífinu með því að létta því róðurinn. Það er líka einföld aðgerð en þarf einungis vilja stjórnvalda. Þannig skapast störf, fyrirtækin fara af stað og hjól atvinnulífsins fara að snúast. En ætli aukin skattbyrgði geti haft slík áhrif?
Nú eru sveitarfélögin líka farin að láta í sér í heyra og í kvöldfréttum Rúv í vikunni voru sveitastjórar nokkurra sveitafélaga óhressir. Þá eru þeir loksins farnir að láta í sér heyra að höfuðstóll lána sé að ganga frá þeim. Þessi óeðlilega hækkun verðbóta er að ganga frá þeim.
Með því að kjósa yfir okkur aukna skatta og meiriháttar niðurskurð í framkvæmdum erum við að horfa á mjög langa kreppu. Vil ég hund heita að eftir 4 ár og tæpar 2 vikur verðum við kominn með upp í háls af boðum, bönnum og auknu skattbyrgði.
Hófsemi er af hinu góða og gildir það einkanlega um ávöxtun eigin fjár. En það er ekkert að því að hagnast og "græða". Það er á ábyrgð stjórnvalda að það sé hægt að hagnast af hófsemi halda og stuðla að því að fyrirtæki blómstri og ráði í fleiri störf, og fólkið í landinu nái endum saman um hver mánaðamót.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Flestir af stjórnmálaflokkunum vilja og berjast fyrir auknum tekjum í kassa ríkissjóðs sem er ábyrg hugsun. Þá eru til nokkrar leiðir. Auðveldasta leiðin er að hækka skatta og gjöld. Nú þegar matarpokinn er á ca. 7000 kr., bílalánin út úr öllu korti, og annar fastakostnaður heimilanna að gera okkur öll brjáluð er þá aukin skattbyrgði lausn sem við þurfum? Ef við viljum það erum við að setja samþykki fyrir því að almenningur eigi að borga fyrir brjálæði í of-fjárfestingum fárra auðmanna. Önnur úrræði í tekjuaukningu er að ýta við tekjupóstum ríkisjóðs (vsk, innflutningsgjalda, tolla o.fl.). Til þess að svo gerist þarf að ýta við efnahagslífinu með því að létta því róðurinn. Það er líka einföld aðgerð en þarf einungis vilja stjórnvalda. Þannig skapast störf, fyrirtækin fara af stað og hjól atvinnulífsins fara að snúast. En ætli aukin skattbyrgði geti haft slík áhrif?
Nú eru sveitarfélögin líka farin að láta í sér í heyra og í kvöldfréttum Rúv í kvöld voru sveitastjórar nokkurra sveitafélaga óhressir. Þá eru þeir loksins farnir að láta í sér heyra að höfuðstóll lána sé að ganga frá þeim. Þessi óeðlilega hækkun verðbóta er að ganga frá þeim.
Með því að kjósa yfir okkur aukna skatta og meiriháttar niðurskurð í framkvæmdum erum við að horfa á mjög langa kreppu. Vil ég hund heita að eftir 4 ár og tæpar 2 vikur verðum við kominn með upp í háls af boðum, bönnum og auknu skattbyrgði.
Hófsemi er af hinu góða og gildir það einkanlega um ávöxtun eigin fjárs. En það er ekkert að því að hagnast og "græða". Það er á ábyrgð stjórnvalda að það sé hægt að hagnast af hófsemi, annars gerist ekkert í hagkerfinu hjá okkur. Það er staðreynd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
13.4.2009 | 10:46
Loksins, við verðum að standa saman!
Þetta erindi frá Hagsmunasamtökum Heimilanna segir allt sem segja þarf. Aðgerðir hingað til hafa einkennst að skammtímalausunum en alvöru lausnir til lengri tíma hafa verið kveðnar í kútinn. Margar lausnir eru nú þegar tilbúnar sem gerir það að verkum að heimilin geti fengið að sjá ljós í myrkrinu, þar sem hagsmunum lántaka og lánveitanda eru hafðar í fyrirrúmi. Kæri lesandi, ég hvet þig til þess að leggja Hagsmunum Heimilanna lið með því að sett þitt nafn á stuðningslista á www.heimilin.is VIÐ VERÐUM AÐ STANDA SAMAN!!!
Hér er erindið frá samtökunum í heild sinni af www.heimilin.is
Það glittir bara í löngutöng- Brauðmolum kastað til lýðsins
- Samkomulag án aðkomu lántakenda er marklaust
- Krafa um sanngjarna skiptingu byrða
- Vörn fyrir öll sparnaðarform, ekki bara sum
- Mesta eignaupptaka Íslandssögunnar í sjónmáli
- Lýst eftir betri lánakjörum ekki lengingu á því sama
- Bankakerfið fellur, ef gjaldþrotaleiðin verður farin
Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla harðlega þeirri ákvörðun stjórnvalda og fjármálafyrirtækja að sniðganga með öllu sanngjarnar og hóflegar tillögur samtakanna um leiðréttingu gengis- og verðtryggðra fasteignalána. Að sama skapi mótmæla samtökin þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem liggja til grundvallar samkomulagi stjórnvalda og fjármálafyrirtækja. Í fréttatilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu má lesa að ráðuneytið og lánveitendur hafi gert með sér samkomulag um að tryggja greiðslujöfnun gengistryggðra fasteignaveðlána einstaklinga. Hagsmunasamtök heimilanna vekja sérstaka athygli á að ekkert samráð virðist hafa verið haft við neytendur vegna málsins. Slíkt er með öllu óásættanlegt og ber merki um einstakan valdhroka og einbeittan brotavilja gagnvart þjóð sem er ætlað að bera mjög þungar byrðar á næstu árum. Svona samkomulag er marklaust án aðkomu allra hagsmunaaðila.
Sanngjörn skipti
Í ræðu á Austurvelli þann 17. janúar 2009 sagði núverandi viðskiptaráðherra: Fjölmörg heimili og fyrirtæki eiga eftir að ganga í gegnum erfiða og þungbæra fjárhagslega endurskipulagningu. Ríkið þarf að skera niður og hækka skatta. Þetta eru ekki skemmtileg verkefni. Það er hins vegar ekkert sem fyrir liggur sem er óviðráðanlegt. Því fer raunar fjarri. Byrðarnar verða þungar um tíma en ef þeim er skipt á sanngjarnan hátt þá verða þær engum óbærilegar.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt það til að lánveitendur og lántakendur skipti með sér þeim kostnaði sem til hefur fallið vegna efnahagskreppunnar. Með því að velja greiðslujöfnun og hafna almennri leiðréttingu hafa stjórnvöld eingöngu ákveðið að lengja í hengingarólinni. Heimilin eiga að halda áfram að setja stærstan hluta tekna sinna inn í greiðslur af lánum. Þau skulu blóðmjólkuð. Þegar því er lokið, munu lánastofnanir geta gengið að fasteignum heimilanna. Samtökin óttast að næsta skref stjórnvalda verði að gera lánastofnunum auðveldara að stofna eignarhaldsfélög sem taka við íbúðum eftir nauðungarsölu, í þeim tilgangi að leigja út íbúðir til að hámarka arð af eignanáminu.
Að mati ríkisstjórnarinnar er þetta ábyrg leið þar sem hún bæði kemur til móts við þarfir lántaka og hefur þann augljósa kost að hún stefnir ekki nýja íslenska fjármálakerfinu í hættu, segir viðskiptaráðherra um málið í frétt sem birt var á Vísi þann 9. apríl 2009. http://visir.is/article/20090409/FRETTIR01/274442683
Hagsmunasamtök heimilanna sjá sig knúin til að vara við slíkum þankagangi. Þessar aðgerðir eru fyrst og fremst miðaðar að þörfum lánveitenda, enda lántakendur ekki spurðir álits. Samtökin telja knýjandi þörf fyrir róttækari aðgerðir til að sporna við keðjuverkandi, neikvæðum áhrifum kreppunnar. Greiðslujöfnun íbúðalána er eins og að setja plástur á fótbrot. Samtökin spyrja hvort það sé forsvaranlegt að stefna íslenskum heimilum í hættu á kostnað hins nýja íslenska fjármálakerfis, sem virðist grunsamlega líkt því sem fyrir var. Er það virkilega ætlun stjórnvalda að fjármagna uppbyggingu bankakerfisins með fasteignum heimilanna og tekjum þeirra um langa framtíð?
Krafa um réttlæti og jafnræði
Þarfir lántakenda snúast ekki síst um réttlæti og að jafnræðis sé gætt. Fram hefur komið, að með setningu neyðarlaganna hafi innstæður verið tryggðar umfram það sem bar lögum samkvæmt. Einnig að komið var til móts við þá sem áttu sparifé sem tapaðist í peningamarkaðssjóðum. Spyrja má um kostnað í því samhengi (800 milljarðar hafa verið tilgreindir). Með þessu móti var gert upp á milli sparnaðarleiða, þar sem þeir sem settu sparifé sitt í fasteign, hlutabréf og lífeyrissjóði horfa á það ýmist brenna upp á verðbólgubáli eða vegna eignartaps tengt hruni bankanna. Samtökunum finnst einkennilegt að taka eina eða tvær sparnaðarleiðir út úr og veita þeim vernd umfram aðrar leiðir. Minna má á að ráðgjöf banka í húsnæðismálum síðustu árin snerist í miklu mæli um að vísa lántakendum í áhættusamar lánveitingar í formi gengistryggðra lána á þeirri forsendu að gengið væri stöðugt. Jafnvel var vísað í hagspár greiningadeilda þessara sömu banka sem ekki bara höfðu birt kolrangar spár, heldur einnig spár sem gátu ekki staðist í ljósi vitneskju sem síðar hefur komið fram. Ekki er hægt að túlka þessar spár í dag á annan hátt en afbökun á staðreyndum eða blekkingar. Sem afleiðing af því stóðust verðbólguforsendur við lántöku ekki. Þetta var allt vegna þess að bankarnir, eigendur þeirra og stjórnendur höfðu, viljandi eða þvingaðir, tekið stöðu gegn krónunni og stuðluðu með því að hækkun höfuðstóls lána, bæði gengis- og verðtryggðra.
Með samkomulagi viðskiptaráðuneytisins og fjármálafyrirtækja er ábyrgð lánastofnana á því ástandi sem hér hefur skapast í raun að engu gerð og svik þeirra við heimili landsmanna samþykkt af ríkisstjórninni. Hagsmunasamtök heimilanna líta á þennan gjörning sem stríðsyfirlýsingu lánastofnana og stjórnvalda gegn heimilum. Engar leiðréttingar eiga að fara fram, enginn tekur raunverulega ábyrgð. Svona aðgerðir hefðu líklegast gert mikið gagn fyrir ári eða þess vegna átta mánuðum, en í dag virka þær sem salt í sárið. Úrræðin eru lausnir fyrir lánastofnanir, ekki lántakendur. Hvergi er gerð tilraun til að létta á vaxtabyrði, draga til baka hækkanir sem lánastofnanir bera ábyrgð á eða leiðrétta vegna ranglegra tekinna verðbóta. Lausnirnar eru ekki til að létta heildargreiðslubyrði, heldur til að þyngja þær. Hvergi er gerð hin minnsta tilraun til að bera fram réttlæti í orði eða verki. Allar lausnirnar lúta að því að styrkja skuldahlekkina, auka byrðarnar.
Sáttarhöndin ekki sjáanleg
Samtökin vilja rifja upp orð Gylfa Magnússonar, núverandi viðskiptaráðherra, í ræðu á Austurvelli þann 17. janúar 2009:
Sú hugmyndafræði sem kom okkur í núverandi stöðu er andlega gjaldþrota. Þeir sem fóru fyrir henni þurfa að víkja strax af sviðinu og láta öðrum eftir uppbygginguna. Hvort sem þeir eru í stjórnmálum, stjórnkerfinu, fyrirtækjarekstri, fara fyrir hagsmunasamtökum eða voru bara í klappliðinu. Fyrsta skrefið til fyrirgefningar er að þetta fólk rétti fram sáttahönd og axli ábyrgð með því að víkja. Því miður hefur lítið sést til þeirrar sáttahandar enn þá. Það glittir bara í löngutöng.
Það er dapurleg staðreynd að einmitt sá aðili sem viðhafði ofangreind orð skuli nú standa í fylkingarbrjósti þeirra afla sem hafa í hyggju að standa fyrir mestu eignaupptöku Íslandssögunnar. Eignaupptöku, sem á að standa undir hinu "nýja" fjármálakerfi, eftir að það "gamla" hafði sólundað öllu fé sem því var treyst fyrir og er í raun fullkomlega gjaldþrota og gott betur. Við höfum séð löngutöngina, en hvar er sáttarhöndin?
Heimilin njóti betri kjara
Hagsmunasamtök heimilanna skora á lánastofnanir að bjóða ný lán með hagkvæmari kjörum en þeim sem fyrir eru. Samtökin skora jafnframt á lánastofnanir að taka án undanbragða á sig að minnsta kosti jafnar byrðar varðandi verðtryggð lán á móti lántakendum afturvirkt til 1. janúar 2008. Svigrúmið er fyrir hendi hjá flestum aðilum. Samkvæmt upplýsingum frá skilanefndum gömlu bankanna er ætlunin að leggja nýjum afsprengjum þeirra til ríflega 3.300 milljarða "afslátt" af innlendum lánasöfnum. Hvers konar siðferði er að taka við miklum afslætti frá lánadrottnum en ætla ekki að skila honum til lántakenda? Samkvæmt dómi hæstaréttar bar verktaka að láta viðskiptavin njóta afsláttar sem hann fékk hjá birga. Ætli þessi dómur sé fordæmisgefandi?
Komi lánastofnanir ekki til móts við heimilin í landinu með því að létta á skuldabyrði þeirra og heildargreiðslubyrði, þá sjá samtökin ekki að það þjóni nokkrum tilgangi að fólk haldi áfram að borga af skuldum sínum. Það er val hvers og eins hvaða ákvörðun hann tekur, en samtökin spyrja: Hve marga þarf, sem hætta að greiða, til að opna augu fjármálafyrirtækja fyrir því að þau þurfa líka að færa fórnir?
Brauðmolar ríkisstjórnarinnar
Frá hruni bankanna hafa þær tvær ríkisstjórnir, sem með völd hafa farið, vissulega gert ýmislegt í þeim tilgangi að létta undir með heimilunum. Samkvæmt bestu manna útreikningum eru áhrif þessara aðgerða minniháttar og kostnaður ríkissjóðs nær enginn. Vissulega leggjast öll útgjöld ríkissjóðs á endanum á skattgreiðendur, en fyrr má nú vera sparðatíningur. Á sama tíma og allt að 600 milljarðar eru settir í að verja innistæður og yfir 200 milljörðum er bætt í peningasjóði, er 2 milljörðum beint til heimilanna í formi aukinna vaxtabóta. Nú til að bíta skömmina úr nálinni, þá leggur meirihluti efnahags- og skattanefndar til að meðan vaxtabætur til tekjulágra hækki um allt að 30%, þá hækki vaxtabætur hjóna, sem hafa milli 8 og 12 milljónir í árstekjum, um allt að 500%. Við höfum séð brauðmolana, en bíðum eftir raunverulegum úrræðum.
Málssókn til varnar heimilunum
Innan Hagsmunasamtaka heimilanna hefur myndast hópur fólks sem er að undirbúa málssókn til varnar heimilum þess. Samtökin hvetja þá sem vilja taka þátt í slíkri málssókn eða leggja henni lið að setja sig í samband við samtökin með því að senda tölvupóst á heimilin@heimilin.is. Hagsmunasamtök heimilanna vilja standa vörð um þau sjálfsögðu mannréttindi að eiga öruggt skjól gegn ofríki fjármálastofnana. Í því sambandi minna samtökin á eftirfarandi greinar úr Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna:4. grein.Engan mann skal hneppa í þrældóm né nauðungarvinnu. Þrælahald og þrælaverslun, hverju nafni sem nefnist, skulu bönnuð.17. grein. 1. Hverjum manni skal heimilt að eiga eignir, einum sér eða í félagi við aðra.2. Engan má eftir geðþótta svipta eign sinni.25. grein.1. Hver maður á kröfu til lífskjara, sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan hans sjálfs og fjölskyldu hans. Telst þar til matur, klæðnaður, húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg félagshjálp, svo og réttindi til öryggis gegn atvinnuleysi, veikindum, örorku, fyrirvinnumissi, elli eða öðrum áföllum, sem skorti valda og hann getur ekki við gert.2. Mæðrum og börnum ber sérstök vernd og aðstoð. Öll börn, skilgetin sem óskilgetin, skulu njóta sömu félagsverndar.
Breytinga þörf, ef ekki á illa að fara
Verði ekki breyting á stefnu stjórnvalda og viðhorfi fjármálastofnana, mun sverfa til stáls. Hagsmunasamtök heimilanna munu ekki sitja hjá hljóðalaust og horfa á þjóðfélagið sökkva niður í botnlaust skuldafenið. Samtökin munu ekki sætta sig við að fasteignir heimilanna og fyrirtækin í landinu verði notuð til að fjármagna bankakerfið. Samtökin krefjast þess að stjórnvöld taki tillit til heimilanna og atvinnulífsins. Samtökin krefjast þess að fjármálafyrirtæki komi til móts við heimilin og atvinnulífið með raunhæfum úrræðum fyrir lántakendur, en ekki leiðum sem henta bara fjármálafyrirtækjunum. Meðan bankakerfið sogar til sín allt laust fjármagn blæðir heimilunum og atvinnulífinu út. Það endar með ekki nema á einn veg. Bankakerfið fer aftur í þrot.
Það eru hagsmunir allra, að fjármálafyrirtækin axli ábyrgð á sínum hluta af hruni hagkerfisins. Það er ekki gert með því að ganga fram af hörku gegn heimilunum og atvinnulífinu. Það er ekki gert með því að bjóða bara lausnir sem soga sífellt stærri hlut af ráðstöfunartekjum heimila og atvinnulífs til sína. Nei, það er gert með því að koma til móts við heimilin og atvinnulífið og færa niður vexti og höfuðstól lána. Og ekki síður með því að færa niður ósanngjarnar og ofteknar verðbætur frá 1. janúar 2008 og leiðrétta höfuðstól gengistryggðra lána miðað við sömu dagsetningu. Hagsmunasamtök heimilanna
Páskadag, 12. apríl 2009
Málsókn til varnar heimilum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eftir 25.apríl mun Gylfi Magnússon annaðhvort missa vinnuna eða halda henni. Óvissan á hans heimili eru mikil...eða? Hann getur farið að kenna aftur, eða...er hann á "Tenure" samningi? Hinsvegar á hann mikla möguleika á stöðu sem bankastjóra hjá einhverjum af öllum þeim bönkum sem við íslendingar eigum. Af hverju? Í fréttablaðinu í dag útskýrir hann það samkomulag sem náðist milli stjórnvalda og lánveitanda og hann var í forsvari fyrir með greiðslujöfnun myntkörfulána. Hann segir; "Ef við grípum til vanhugsaðra aðgerða eins og að afskrifa mikið af eignum þeirra, þá verður endurreisnin mjög endasleppt". Þar með lýsir hann því yfir að fyrirtæki sem skulduðu milljarða í gamla banka kerfinu fá ekki niðurfellingu lána. Punktur....eða?
Á hann við að einstaklingar fái ekki sömu meðferð og fyrirtæki?...eða?
Það sem sést á útreikningi að þeir sem tóku lán í erlendri mynt eru nú endanlega gjaldþrota og eru í MIKLU verri málum eftir þessa ákvörðun þó svo að mánaðrlegar greiðslu verði eitthvað lægri. Hvernig þá? Gylfi Magnússon, leppur Samfylkingarinnar vill ekki að eignir bankanna séu afskrifaðar. Hvernig í ósköpunum getur Gylfi og Samtök fjármálafyrirtækja fært rök fyrir því að lán sem var upphaflega kr. 6.826.000 í maí 2005, er nú kr. 12.358.000 og hefur þannig hækkað um 81% sé réttlát eign lánveitanda, þ.a.s. hækkunin. Er þessi ávöxtun og aukakrafa bankanna réttlát krafa gangvart lántakendum? Gylfi Magnússon heldur því fram. Í stað þess að leiðrétta höfuðstól aftur í tímann og breyta þeim í hefðbundið dapurt verðtryggt lán kýs hann að fara þessa leið. Ef hin leiðin hafi verið farið þá hafa allir íslendingar sem hafa verðtryggð íbúðarlán setið við sama borð og engin hagnast á falli krónunar. En með nýjasta úrræði Gylfa hafa lánveitendur hagnast á falli krónunar og hækkun höfuðstóls eingfærð í bókhald. Við lántakar sem gerðu þau mistök að taka erlend lán sitjum eftir með sárt ennið.
Eitt er víst að nú endanlega staðfesti hann mína ákvörðun að að kjósa hans flokk er brjálæði og Guð hjálpi okkur ef hann fer ekki í kennslu aftur!....afsakið orðbragðið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2023
- Júní 2020
- Mars 2018
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Október 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Nóvember 2006
Bloggvinir
- godsamskipti
- gummisteingrims
- andres
- dofri
- sigmarg
- gattin
- agustolafur
- ellyarmanns
- emmgje
- finnurtg
- tommi
- hipporace
- arnheidurmagg
- formula
- baldvinj
- launafolk
- dullur
- gisgis
- eirikuro
- erla
- folkerfifl
- fridrikof
- ulfarsson
- gerdurpalma112
- gudni-is
- gullvagninn
- jarnskvisan
- id
- fun
- jamesblond
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- ludvikludviksson
- magnusmar
- marinogn
- maggimur
- hux
- rrs
- sigurdurkari
- siggisig
- sigurgeirorri
- sigurjons
- snorrima
- spurs
- vala
- thordisb
- tbs
- thrudur
- vitinn
Tenglar
Frábær myndbönd
- Frábært gamalt myndband frá Jeremy Clarkson um Ísland Nokkuð skemmtileg afþreying!
Hversu biluð erum við?
http://www.psychiatry24x7.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar