Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Hver ykkar vissuð fyrir 30 dögum hvað Icesave var?

Nú les maður ekkert í fréttum nema að nafnið Iceasave komin að minnstakosti einu sinni fyrir. Kannski er það minn "athyglisbrestur" eða lág greindarvísistala sem gerði það að verkum að ég hafði ekki hugmynd um þetta fyrirtæki. Icesave virðist vera "THE COMPANY" sem allir settu sína peninga í. Af hverju? Tjaaaaa.....kíkið á www.icesave.co.uk, slagorð; HIGH INTEREST SAVING ACCOUNTS. Síðan þegar maður skoðar betur sér maðu vaxtaskránna; http://www.icesave.co.uk/interest-rates.html , tjatja.... mundum við ekki bara hrista hausinn yfir svona aumingja vöxtum, 5-7%, hvað voru þessir útlendingar að hugsa vissu þeir ekkert um peninga? SP24 í Grafarvogi...16% vextir...ekkert mál....hvað er málið....er einhver lægð yfir landinu?

En nú er ég búinn að lofa mér einu að halda kj......hér á blogginu þangað til að við erum búinn að fá einhver alvöru gjaldeyrislán og hjólin farin aftur að snúast. Spurningin er bara hvort tölvan verði ekki bara úrelt um það leiti.


Össur og Bretinn

Það er ekki langt frá því að maður sé svolítið fúll út hann Darling eftir óábyrgt blaður, en í heildina hef ég afskaplega gaman af Bretum. mjög gott fólk þó svo að svarti "augna´brúna" sauðurinn og gamli Mr. Brown hafi kúkað í sig. Þessir tveir voru óréttlátir út í okkur "fair play" er ekki til.

 Hér er Össurar grein á Eyjunni.is

http://eyjan.is/goto/ossur/

Þetta fann ég síðan á Times Online.

http://business.timesonline.co.uk/tol/business/industry_sectors/banking_and_finance/article5005572.ece?Submitted=true


Rosalega er þetta Rússadæmi furðulegt

Ég veit ekki með ykkur, en þetta Rússadæmi er að verða hálf kjánalegt. Það situr í mér það sem Geir Haarde sagði 6 okt.:"...we just get new friends". Síðan er skundað til Rússlands s.l. þriðjudag og myndir birtast af mönnum komandi af fundum með hendur í vösum ef 4 daga fundalotu. Þetta er stórfurðulegt dæmi. Hversvegna eiga rússar að styðja við bakið á Íslandi, NATO þjóð? Í kringum 1950 redduðu þeir okkur bílum í skiptum fyrir fisk...kannski að það sé síðasta færsla í möppunni merktri Íslandi hjá þeim? Ég ætla að vona að ég hafi rangt fyrir mér...en þetta er mjög bogið og beyglað.


mbl.is Rússar vilja meiri upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög mikilvægt að þetta sé gert hratt og vel!

Ef þetta er ekki gert strax fyrir næstu útreikninga á lánunum þá verða mörg þúsund fjölskyldna STRAX komin á vanskilaskrá og innan við 4 mánuði kominn í þrot. Þetta er grafalvarlegt!!!

 Nú heyrast raddir að þetta eiga líka að frysta hefðbundinn lán, sem væri algjört glapræði. Gerum okkur grein fyrir að þeir sem tóku erlent lán eins eru langt frá því að græða á því að fá lánið fryst, vegna þess að eftir frystingu eru bönkunum leyft að setja það vaxtaálag sem þeim þóknast, þá eru erlendu lánin ekki einungis háð gengi (sem ekki er til) heldur lika eftir duttlungum nýju ríkisbankanna.

Það er ekki rökrétt að horfa á gengislán sem skammtíma áhættu lán heldur voru langtímalán til fasteignakaupa og því ekki rétt að refsa þeim fjölskyldum sem þetta kusu. Eftir þessar harmfarir eru nú þessi gjaldeyrislán í raun þannig gerð að þau gera fólk gjaldþrota á innan við 4 mánuðum. Það sem er réttast er að breyta þeim í krónu lán, afturreikna lán þegar þau voru tekin og reikna síðan nákvæmlega sömu vaxtakjör og hin hefðbundnu íslensku fasteignalán, þá eru allir komnir við sama borð.

Það sem þarf að laga líka er spennutreyjan á erlendum bílalánum sem við erum í.


mbl.is Afborganir verði frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown er í dapri stöðu á heimamarkaði.

Gordon Brown Eftir að ég las þessa grein eru mörg þúsund sinnum meiri ástæða fyrir Gordon Brown að fljúga til Washington og lemja Bush. Frekar kýs hann að ráðast á litla íslandi og að auki líkja okkur,  (sem höfum engin heimsvöld) við hryðjuverkamenn. Maðurinn er vægast sagt mjög umdeildur og mun ekki verða lengi þarna inni við völd.

Eigum við kannski að bjóða honum á sveitaball og láta Guggu gefa honum gott í kropinn :-). 

 

Síðan er til gamans myndir af tvíburum...eða?Chancellor Alistair DarlingLárus Welding


Ástæða hruns eru of skuldir fjármálastofnanna sem voru tilbúnir að taka áhættu

Ekki einu sinni hugsa ykkur að ástæða þessa hruns sé einum manni að kenna eða einum banka.

What we have learned from this whole exercise over the last few years is that it is not wise for a small country to try to take a leading role in international banking.

http://news.yahoo.com/s/nm/20081009/bs_nm/us_financial_iceland

 


Davíð vantar hæfan slökkviliðsstjóra til að slökkva í brennuvörgunum

Sko...nú er karlinn að vakna..kominn á veraldavefinn. Hvernig væri að THE FIRE CHIEF mundi bjarga okkur út úr þessari vitleysu. Er ekki Davíð alltaf að tala um brennuvarga og slökkvilið....veit maðurinn ekki að við eigum hæfasta slökkviliðsstjóra í heim.
Í frægðarhöll sjóhersins.
Stoltur af karlinum!

New York times sagði....og Davíð er.....

To many Icelanders, their country is the victim of foreign speculators, circling like sharks smelling blood. To outside investors, Iceland is the victim of its own excesses.

Sjá blogg síðan í Apríl hjá mér:

http://hhbe.blog.is/blog/hhbe/entry/511906/

 Síðan verð ég að gefa Davíð (DO) mitt atkvæði fyrir þor og hug að koma fram í Kastljósi kvöld með sýna snilld. Ég er sannfærður um að stór hluti þjóðarinnar hafi róast við að heyra í honum. Samkvæmt fræðingum á hann að ekki að tjá sig og ef hann þarf þess á hann að gera það á yfirborðskenndan og loðinn hátt. Nei....DO var hann sjálfur enn og aftur og brilleraði. Hann á eflaust marga andstæðinga vegna einhverra tilfinninga, en ísland hefur vissa sál og hann er svo sannarlega hluti af henni. Áfram ísland!


Hlutafjáraukning í Glitni á næsta leiti...eða vitið þið hvað lausafé er í raun?

Hlutafjáraukning í Glitni á næsta leiti...eða vitið þið hvað lausafé er í raun?

Vitið þið hvað lausafé er?

Gummi í Bónus er síðan farin að taka við skipunum frá Jóni Ásgeiri um að efna til múg-æsings með íslenska vöru....er skítlegt eðli manna að koma nú í ljós?

Einnig voru nokkur viðtöl í dag í fjölmiðlum sem "meikuðu sens". Hitt var hræðsluáróður og tilbúningur. Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London school of Economics kom með nýjan vinkil sem jarðar þetta kvart og kvein BAUGS vina. Einnig staðfesti mína skoðun hversu óheppilegt það er að hafa Davíð Oddson í seðlabankanum.

Hlustið á þetta: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4437647

Kíkið að þetta við tækifæri: http://www.youtube.com/watch?v=k3_G3hqNkxo&feature=user

 


Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband