Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Í kjölfar skýrslunar viljum við kosningar! Við viljum nýtt fólk á þing!

"....næsta verkefni þá í tengslum við það er auðvitað að finna nýja eigendur til þess að taka allt draslið yfir."

Sigurjón Þ. Árnason um viðskipti sín við Björgólfsfeðga.---

 

"Þrátt fyrir veisluhöld og samskipti við ríka og fræga fólkið í London hafði Ármann hvorki náð heppilegum tengslum inn í breskt stjórnkerfi né hafði hann nógu djúpan skilning á því."

Hreiðar Már Sigurðsson um kokteilboð Ármanns Þorvaldssonar, fyrrverandi bankastjóri Singer og Friedlander dótturfélags Kaupþings í Bretlandi.---

 

"Þarna situr forsætisráðherra frammi og skelfur eins og lauf í vindi og getur ekki tekið ákvörðun. Hann hlustar á þig og þú ert að grafa undan þessu. Ef þetta gengur ekki fram mun ég persónulega sjá til þess að þér verði ólíft á Íslandi það sem eftir er."

Tryggvi Þór Herbertsson vitnar í orð Davíðs Oddssonar í aðdraganda þjóðnýtingu Glitnis.---

 

"Og frá því er skemmst að segja að hann nánast skalf og nötraði. Hann sagði: „Þú getur ekki gert mér þetta. Ég get ekki farið þarna upp og sagt þetta við Davíð."

Össur Skarphéðinsson lýsir samtali sínu við Geir Haarde þegar ákvörðun var tekin um Davíð Oddsson myndi ekki leiða neyðarstjórn.---

 

"En þarna var hann [Davíð Oddsson] ofsalega reyttur og tættur og eins og ég sagði frá því, eins og blöndu af einhverju taugalosti og sturlun. [...]Og kom þessi fræga setning: „Ef einhvern tíma er þörf fyrir þjóðstjórn á Íslandi þá er það núna"."

Össur Skarphéðinsson lýsir innkomu Davíðs Oddssonar á fund í aðdraganda hrunsins.---

 

 

Halldór J. Kristinsson spyr Davíð út í hugmyndir Landsbankans um sameiningu við Glitni. Davíð segist geta samþykkt tillöguna með einu skilyrði.

DO: Það er að ég komist í stjórn Blómavals.

HJK: Er þetta svona vitlaust, spurði þá Halldór.

DO: Já þetta er svona vitlaust.---

 

"Ansans, verð ég þá að gera það?" -

Davíð OddssonHreiðar segir frá því þegar Davíð Oddsson hringir í hann og spyr hvort Kaupþing muni lána Glitni 600 milljónir evra. Hreiðar svarar neitandi.---

 

"Þið eigið að standa með okkur. Þið eigið ekki að vera að gagnrýna bankana og gera athugasemdir við bankana, þið eigið að standa með okkur."

Birna Einarsdóttir, við Styrmi Gunnarsson ritstjóra Morgunblaðsins.---

 

"En á ég ekki að hringja í viðskiptaráðherrann? Og hún sagði: Ekki strax, þannig að ekki tala við neinn, "keep it under wraps". "

Össur Skarphéðinsson um viðbrögð Ingibjargar Sólrúnar við hugmynd hans um að láta viðskiptaráðherra vita að Glitnir væri að fara til fjandans.---

 

"Þau laun sem ég hef verið með hjá þessum banka síðan 2003 hafa í öllum samanburði við þá sem ég ber mig saman við verið óheyrilega lág. Það er nefnilega þannig,"

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings við rannsóknarnefnd Alþingis---

 

"Eins gott að menn vissu það ekki, því þá hefðu þeir kannski farið að taka út það sem þeir áttu ekki fyrir."

Davíð Oddsson um ábyrgð Seðlabankans á greiðslukortum landans.---

 

„Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út."

Össur Skarphéðinsson um tilboð Landsbankamanna kortéri fyrir hrun---

 

 

„Ja, hann var náttúrulega bara alveg skelfilegur og það lá við að maður hringdi heim til þess bara að biðja konuna að fara út og kaupa mjólk, svo það yrði örugglega til mjólk í ísskápnum, það var nú þannig lýsingarnar sem voru á því hvaða ástand mundi skapast,"

Árni Mathiesen eftir að Davíð Oddsson hafði lýst efnahagshorfum landsins.---

 

"Ég meina, ég stóð allsber í búningsklefanum í World Class, var að fara í gufubað á sunnudegi og var að halda mér sérstaklega til því að ég var í fyrsta skipti á ævinni að fara til klæðskera. Og leit á símann minn í fötunum áður en ég fór í gufuna og þá sá ég bara að þar voru ógeðslega mörg símtöl og sms frá Einari Karli sem var staddur í Glasgow og sagði að það væru allir að leita að mér."

Össur Skarphéðinsson þegar Glitnir var að fara til fjandans.---

 

"...maður var alltaf að hafa þann fyrirvara að þetta mundi allt saman, markaðirnir opnast og asnarnir með gullkisturnar kæmu aftur og allt þetta. Ég velti fyrir mér þegar maður talar fyrir daufum eyrum, á maður bara ekki að fara?"

Davíð Oddsson í skýrslutöku í siðferðiskafla skýrslunnar.---

 

"Það er sama hvert þú horfir, á önnur fjárfestingarfélög, á bankana og hvert sem er, unga kynslóðin er að brjóta blað í sögu landsins í einhverjum skilningi."

Hannes Smárason í viðtali við Örnu Schram í tímaritinu Krónikunni, 15. febrúar 2007.


Bráðlega fer ég í einkamál og lögsæki þá sem tóku stöðu gegn krónunni! En þú?

Ég nenni ekki að ræða það núna heldur set ég smá texta úr Rannsóknarskýrslunni lesendum til yndisauka:

Úr skýrslu rannsóknarnefndar
"Bankamálaráðherra, nei, við töluðum við aldrei við hann, Seðlabankinn bara boycut-aði á hann og talaði aldrei við hann, hann var náttúrulega aldrei inni í neinu, það talaði aldr

"Bankamálaráðherra, nei, við töluðum við aldrei við hann, Seðlabankinn bara boycut-aði á hann og talaði aldrei við hann, hann var náttúrulega aldrei inni í neinu, það talaði aldrei neinn við hann."

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.

"Það er nú eitt sem maður saknar svolítið, mér finnst að við hefðum getað gert meira, við Íslendingar, á þessu blómaskeiði okkar. Það ætti að liggja meira eftir okkur, stór verk."

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.

"Og ég sagði við hann: Þorsteinn [M. Jónsson], ég veit að þú átt enga peninga, geturðu útskýrt fyrir mér hvernig þú getur keypt Vífilfell? Og hann horfði á mig, brosti, og ég gleymi aldrei orðalaginu: Með þróaðri fjármálatækni."

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins.

"Sigurjón er nú mikill stærðfræðingur og teiknaði upp fyrir mig einhver box sem ég skildi nú ekki helminginn af hvernig ætti að með pílum og örum að sem sagt ná í pening út úr Seðlabanka Evrópu. Þetta snerist allt um það að búa til einhver instrúment, einhver bréf sem bankinn tæki gild sem veðandlag fyrir því að ná út evrum."

Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

"Þau laun sem ég hef verið með hjá þessum banka síðan 2003 hafa í öllum samanburði við þá sem ég ber mig saman við verið óheyrilega lág. Það er nefnilega þannig."

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings.

 


Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband