Hagsmunasamtök Heimilanna er öflug samtök, mönnuð konum og körlum úr öllum stéttum samfélagsins. Síðustu vikur hafa samtökin unnið hörðum höndum að samfélagssáttmála. Þar hafa heiðarlegt vinnandi fólk með metnað lagt bæði dag sem nótt að setja saman raunhæfan sáttmála. Ekki hefur slíkt komið fram frá nokkrum hóp til þessa, hvað þá frá stjórnvöldum.
Eftirfarandi sáttmála er hægt að nálgast á www.heimilin.is
Markmið og kröfur til nýs samfélagssáttmála
Markmið
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna telur ljóst að alger forsendubrestur sé kominn upp í veðlánum
heimila, bæði hvað varðar verð‐ og gengistryggð lán, sem vegur að fjárhagslegu sjálfstæði íslenskra heimila og grefur undan tilvist þeirra og framtíðarsýn.
Forsendur endurreisnar eru að leiðréttingar á stöðu mála eigi sér stað í sumar og í framhaldi sameinist hagsmunaaðilar og stjórnvöld um endurmótun og þróun kerfis með það að leiðarljósi að ábyrgð í lánveitingum verði framvegis deilt af meira jafnræði milli lánveitenda og lántaka. Jafnframt verði samtímis hafist handa við að snúa ógnvekjandi skuldastöðu heimilanna við.
Hagsmunasamtök heimilanna setja hér með fram tillögur að leiðum, sem innlegg í nýjan samfélagssáttmála, til að sátt náist aftur milli hins opinbera, fjármálakerfis, atvinnulífs og heimila hér á landi sem allra fyrst. Sú sátt sem hefur varað í fjölda mörg ár, um í raun meingallað fjármálakerfi, var rofin í undanfara bankahrunsins. Ljóst er að hvorki heimilin né atvinnulífið í landinu hafa lengur ráð á núverandi verðtryggðu lánakerfi, sem hlýtur að kalla á fullkomna endurskoðun kerfisins. Til að endurheimta og byggja aftur upp traust milli þessara aðila og koma á nýjum samfélagssáttmála telur stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna nauðsynlegt að vinna að eftirfarandi markmiðum og aðgerðum:
Meginmarkmið er að efla trú landsmanna á grunnstoðir samfélagsins í kjölfar hrunsins og byggja upp von um sanngjörn og uppbyggileg skilyrði fyrir fjölskyldur hér á landi til framtíðar og koma þar með í veg fyrir upplausn og umfangsmikinn landflótta.
Leiðrétta stöðu gengis‐ og verðtryggðra neytendalána strax í sumar.
Leitað verði allra leiða til að skapa eins mörgum og hægt er fjárhagslegar forsendur til að halda
húsnæði sínu með því að laga til langs tíma greiðslubyrði að greiðslugetu, án þess að lengja stöðugt í lánum
Endurvinna kaupmátt heimilanna með því að draga markvisst úr skuldsetningu þeirra með skýrri
sameiginlegri stefnumörkun hins opinbera, samtaka neytenda, launþega og atvinnulífs. Forðast ber
þensluhvetjandi úrræði og álögur sem munu hækka beint innlent verðlag og draga þannig úr
samkeppnishæfi framleiðslufyrirtækja, útflutningsgreina og ferðaþjónustufyrirtækja.
Afnema tengingu neysluverðsvísitölu við veðlán neytenda og gera lánakjör veðlána sambærileg og á Norðurlöndunum.
Koma á virkum samkeppnismarkaði með íbúðarhúsnæði, bæði á eignar‐ og leigumarkaði.
Tryggja að allir landsmenn, 18 ára og eldri, geti verið þátttakendur á húsnæðismarkaði eftir efnum, áherslum og aðstæðum.
Endurskapa fjármálakerfið sem sanngjarnan bakhjarl heimila og atvinnulífs landsins, sem stenst
samanburð fjármálakerfa Norðurlandanna.
Jafna ábyrgð lántakenda og lánveitenda við útlán, m.a. með því að takmarka veð við veðandlag,
takmarka kröfur um ábyrgðarmenn, afnema samkeppnishamlandi gjöld og kvaðir fjármálafyrirtækja.
Snúa kredithagkerfinu í debethagkerfi með áherslu á frjálsan sparnað.
Tryggja betri vernd og vitund neytenda um rétt og skyldur með eflingu málaflokksins.
Yfirfara og endurskoða útreikninga og forsendur verðtryggingar og verðbreytinga á núverandi
lánasöfnum, fyrir 1.okt. nk.
Endurskoða lög um greiðsluaðlögun, innheimtukostnað og fyrningarfrest fyrir 1.okt. nk., svo að
kynnt úrræði virki í reynd fyrir almenning, séu raunhæf úrræði og þannig að viðreisnar sé von eftir
þrot.
Bráðaaðgerðir ‐ tillaga HH að nauðsynlegum tafarlausum aðgerðum
Grunnkrafa er gerð um að ábyrgð og kostnaði sé jafnað milli lántakenda og lánveitenda með leiðréttingu veðlána, samkvæmt tillögum HH á fjárhagslegum skaða þeim sem hlotist hefur í aðdraganda og í kjölfar hruns fjármálakerfisins. Samtökin hafna einhliða boðaðri leið stjórnvalda að deila kostnaði vegna efnahagshrunsins út frá skuldastöðu heimilanna eins og nú er gert með því að knýja fram skuldaviðurkenningu veðkrafna fjármálastofnana. Þessar veðkröfur sem um ræðir eru langt umfram þær skuldir sem upphaflega var stofnað til af samningsaðilum og þar með langt umfram upphaflega samninga og greiðsluáætlanir. Þær fela í raun í sér stórtæka eignaupptöku í eiginfjárhlut fjölskyldna í fasteignum, sparnaði og jafnvel ævilanga áskrift fjármálafyrirtækja að framtíðartekjum lántakenda. Samtökin hafna því einnig að hægt sé hægt að senda bakreikninga á verðtryggð lánasöfn heimilanna með beinum hækkunum á neysluverðsvísitölu. Heimilin eru ekki, og mega ekki vera, botnlaus sjálftökusjóður til að bæta fyrir tjón sem varð vegna óábyrgrar útlánastefnu fjármálastofnana og meingallaðrar efnahagsstjórnar stjórnvalda.
Gerð er krafa um að hrun efnahagskerfisins og þar með vandi heimilanna sé skilgreint sem þjóðhagslegt vandamál, sem beri að taka á með tilstilli sameiginlegra sjóða og taka tillit til í samningagerð við kröfuhafa, þar sem byrðum verði deilt í samræmi við tekjur.
Ríkissjóður takmarki ábyrgðir sínar á skuldbindingum vegna fjármálastofnana við reglugerðir og
samþykktir. Jafnræðis verði gætt í úrræðum og lausnum gagnvart mismunandi eignarformum.
Leiðrétting gengistryggðra veðlána. Boðið verði upp á að breyta gengistryggðum veðlánum
heimilanna í verðtryggð, sem miðist við gengi lántökudags. Lánið verði síðan uppreiknað miðað við
verðbætur frá og með sama tíma.
Leiðrétting verðtryggðra veðlána. Verðbótaþáttur verðtryggðra veðlána heimilanna verði leiðréttur
aftur til 1.janúar 2008 og miðist þá við 4% verðbótaþak skv. hámarks þolmörkum
verðbólgumarkmiða Seðlabanka Íslands.
Leiðrétting veðlána taki einnig til uppgjöra á veðlánum frá og með 1.janúar 2008, þar með talið upp og inngreiðslum á höfuðstóla og nauðasamningum.
Tafarlaust verði sett á stofn sáttanefnd / gerðardómur í anda tillagna Talsmanns neytenda með það að markmiði að forða frekari eignabruna og frekari fjárhagshremmingum heimilanna með sem
skjótvirkustum hætti. Mikilvægt er að almenningur fái sem fyrst skýr jákvæð skilaboð um að
stjórnvöld kveði á um jöfnun ábyrðar milli lántakenda og lánveitenda, sem samtímis eflir traust milli
almennings, stjórnvalda og fjármálakerfisins og styrkir greiðsluvilja.
Breyting á lögum um greiðsluaðlögun, skv. tillögum HH sem lagðar voru fyrir Alsherjanefnd Alþingis
(sjá vefsíðu www.heimilin.is). Meginefni tillagna HH voru að úrræðið gildi fyrir alla óháð
atvinnuformi. Jafnframt að úræðið taki strax á skuldum fólks en ekki verði farin leið sem má kalla
lengingu á hengingaról með tilsjónarmanni.
Breyting á lögum um innheimtulög. Krafa HH er að lágmarks neytendavernd komi fram í þessum
lögum og reglugerð sem þeim fylgir. Setja þarf % þak á innheimtukostnað t.d. 20% á skuldir innan
við 50.000 kr. Koma þarf í veg fyrir göt í lögum, sem gera slyngum innheimtulögfræðingum kleift að
nýta sér í innheimtuaðgerðum sínum gagnvart heimilum.
Breyting á lögum um fyrningu kröfuréttinda. Krafa HH er að fyrning fyrir einstaklinga sé 5 ár og
alfarið sé komið í veg fyrir að hægt sé að endurnýja fyrndar kröfur með nokkrum hætti.
Viðsnúningur ‐ tillaga HH að aðgerðum til viðsnúnings á skuldastöðu heimilanna
Grunnkrafan er að stjórnsýslan í samvinnu við fulltrúa neytenda og verkalýðshreyfinguna setji fram
markvissa og tímasetta áætlun um leiðir til að minnka skuldastöðu heimilanna. Árið 1995 voru
heildarskuldir 125% af ráðstöfunartekjum og höfðu hækkað í 221% af ráðstöfunartekjum við ársbyrjun 2008 og um 280% við árslok 2008. Á sama tíma hefur skuldastaða heimila hinna Norðurlandanna farið lækkandi.
Neytendastofnun verði stofnuð að norrænni fyrirmynd og fjármögnuð af ríkinu. Þar verði öll svið
neytendamála sameinuð og efld stórlega. Meginmarkmið er að snúa ofan af sí hækkandi
skuldsetningu heimilanna með breytingum á samkeppnisumhverfi helstu útgjaldaþátta heimilanna,
breytingum á fjármögnun veðlána, aukinni upplýsingagjöf um réttindi , skyldur og efla almenna
meðvitund um fjármál heimila og einstaklinga með það að markmiði að hvetja til debetneyslu og
frjáls sparnaðar.
Tafarlaust verði sett á nefnd / gerðardómur sem yfirfari reiknireglur og útfærslur á útreikningi
verðbóta út frá neysluverðsvísitölu. Reikniaðferðir fjármálastofnana verði sannreyndar. Komi fram
misbrestur á útreikningi lántakendum í hag verði tafarlaust sett fram tímasett áætlun um
leiðréttingu.
Tafarlaust verði sett fram tímasett áætlun um afnám verðtryggingar og að kjör á veðlánum neytenda verði sambærileg kjörum Norðurlanda. Fram að afnámi verði bæði sett þak á óverðtryggð breytileg veðlán og á verðbætur verðtryggðra veðlána.
Samkeppnishamlandi gjöld við veðlán verði tafarlaust afnumin. Öll gjöld við afgreiðslu lána
endurspegli raunkostnað og verði föst upphæð, óháð upphæð láns.
Kvaðir fjármálastofnana um umfang viðskipta verði bannaðar.
Jafna ber ábyrgð lántakenda og lánveitenda við ný veðútlán, með því að lögboðið verði að veð skuli ávallt takmarkast við veðandlag.
Breytingar á lögum um ábyrgðarmenn, þar sem óheimilt verði að krefjast ábyrgðarmanna við veðlán.
Skattaumhverfi verði breytt þannig heimilin og menntun verði varin í víðasta skilningi. Koma verður í veg fyrir beina fjárhagslega hvatningu kerfisins til skilnaða og undanskota frá sköttum.
Í skattaáherslum séu innbyggðir hvatar til að stofna til heimila / fjölskyldna, þar sem sérstaklega er
tekið tillit til barnafjölskyldna. Heimiluð verði nýting persónuafsláttar innan kjarnafjölskyldna, þeas.
milli foreldra og ungmenna á framfærslu foreldra sinna. Vaxta‐ og húsaleigubætur komi til afsláttar
á tekjuskatti vegna kaupagreiðslna eða leigugjalds á lögheimili. Hvatt verði til sí‐ og
endurmenntunar með skattaafslætti á útlögðum kostnaði vegna náms og vegna faglegrar
símenntunar. Mótuð verði valfrjáls sparnaðarleið fyrir ungt fólk til fasteignakaupa sem veiti afslátt af
tekjuskatti, sbr. BSU kerfi Norðmanna.
Efnahagslegt jafnvægi til framtíðar ‐ tillögur HH
Grunnkrafan er að slegin verði raunverulegri skjaldborg um heimili landsins og að lausnir í dag skapi ekki augljós ný vandamál til framtíðar, ss. undirliggjandi verðbólguþrýsting vegna yfirþyrmandi persónubundinna skulda heimila og atvinnulífs.
Lágmarka ber umfang þrotaúrræða með fyrirbyggjandi aðgerðum til að skjóta styrkari stoðum undir
atvinnustig og þar með greiðslugetu og greiðsluvilja, sem munu skila sér í minni undanskotum. Það mun einnig styrkja fjárhagslega stöðu ríkis og sveitarfélaga.
Lækka verður stýrivexti, lánskostnað og auka almenna lánafyrirgreiðslu tafarlaust til að forða enn
frekari þrengingum atvinnulífsins, til að forða frekari útbreiðslu atvinnuleysis.
Íbúðalánasjóður verður að taka þátt í samkeppni við aðrar fjármálastofnanir með boði á
endurfjármögnun fasteignaveðlána og óverðtryggðum lánum.
Fjölga ber möguleikum á búsetu‐ og eignarformum heimila til samræmis lausnum á
Norðurlöndunum. Ef lánshlutfall verður lækkað sbr. tillögur um takmörkun veðs við veðandlag er
ljóst að eftirspurn eftir leiguhúsnæði mun aukast verulega. Ennfremur þarf að stuðla að meiri
samkeppni á milli eignar‐ og leiguforma til að framkalla eðlilegri verðmyndun á fasteignamarkaði.
Skattaumhverfi verði endurskoðað og endurmetið til jöfnunar og jákvæðrar stýringar til samræmis
við norrænt fjölþrepa skattaumhverfi.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Reykjavík 5. júní 2009
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2023
- Júní 2020
- Mars 2018
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Október 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Nóvember 2006
Bloggvinir
- godsamskipti
- gummisteingrims
- andres
- dofri
- sigmarg
- gattin
- agustolafur
- ellyarmanns
- emmgje
- finnurtg
- tommi
- hipporace
- arnheidurmagg
- formula
- baldvinj
- launafolk
- dullur
- gisgis
- eirikuro
- erla
- folkerfifl
- fridrikof
- ulfarsson
- gerdurpalma112
- gudni-is
- gullvagninn
- jarnskvisan
- id
- fun
- jamesblond
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- ludvikludviksson
- magnusmar
- marinogn
- maggimur
- hux
- rrs
- sigurdurkari
- siggisig
- sigurgeirorri
- sigurjons
- snorrima
- spurs
- vala
- thordisb
- tbs
- thrudur
- vitinn
Tenglar
Frábær myndbönd
- Frábært gamalt myndband frá Jeremy Clarkson um Ísland Nokkuð skemmtileg afþreying!
Hversu biluð erum við?
http://www.psychiatry24x7.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 98438
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.