Leita í fréttum mbl.is

Skoðunarkönnun - Vilt þú taka þátt í fjöldamótmælum n.k. laugardag 6.júní?

Hér til hliðar á síðunni minni hef ég sett upp skoðunarkönnun (nanflaus) til að sjá hversu margir eru tilbúnir að gefa 1-3 tíma n.k laugardag í að mótmæla aðgerðum stjórnvalda og láta hressilega vita af því að við ætlum einfaldlega ekki að láta vaða yfir okkur á skítugum skónum?

Áhugavert að sjá hversu margir eru tilbúnir að mæta....ekki styðja...heldur mæta!

Ef niðurstöður verða jákvæðar svörum við því með skipulegum hætti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hverju á að mótmæla? Þeirri stjórnvalda að efla embætti sérstaks saksóknara? Að undirrita skuldbindingar vegna Icesave?

Hugsanlegur mótmælandi en vill vita hverju á að mótmæla. (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 22:11

2 identicon

Ég er búinn að fá mér full saddann af af þessu bulli .
JÓHANNA ÞINN TÍMI ER KOMIN OG FARIN .
OG STEINGRÍMUR  J,
LÁTTU VERKIN TALA, ÉTTANN SJÁLFUR.

ÉG SEGI NÚ BARA . HÁTT GLYMUR Í TÓMUM TUNNUM . 

Hlynur palsson (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 22:19

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mótmælin snúast um að það verði hætt tafarlaust að ganga á hag heimilanna og að almenningur í landinu þurfi að blæða út á meðan orsakavaldar hrunsins skála í dýrt kampavín í útlöndum, hlæjandi að okkur öllum. Við mótmælum því að þeir sem sitja í nýju bönkunum eru sömu hausar og stýrðu þeim í strand. Við mótmælum aðgerðaleysi stjórnvalda gangvart auknum hag heimilum í landinu. Við mótmælum því að þurfa að hafa borgaðir fyrir kosningar sem skiluðu engum umbótum heldur þvert á móti kaupmáttarskerðingu og auknum skuldum á íbúðum okkar. Við mótmælum því að þeir sem halda á valdarsprota líðvelsisins ganga bakvið sín orð og lugu sig inn í ríkistjórn. Þessi listi er endalaus og furðulegt að IP-Tala hér að ofan viti ekki hverju á að mótmæla.

Haraldur Haraldsson, 31.5.2009 kl. 00:09

4 identicon

Haraldur, ég skildi vel hvað þú meintir.  Ofbeldi banka og yfirvalda gegn skuldurum  verður að stoppa, núna.  Ósvífni og þjófnaður banka og yfirvalda gegn venjulegu fólki/skuldurum verður að stoppa, núna.  Ruddaskapur banka og yfirvalda, sem nota hækkun á bensíni, áfengi, tóbaki, til að hækka fasteignaskuldir venjulegs fólks um milljónir á milljónir ofan skal stoppa núna strax.  Ekki nokkur vafi að ef mannréttindabrotin og ósvífnin ekki stoppar núnar fljótt verður bylting fólksins.

EE elle (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 00:20

5 identicon

IP-talan var að vekja athygli á því að til að mótmælin skili tilætluðum árangri þá þarf tilgangurinn með þeim að vera skýr og helst þarf að vera áætlun um að fylgja þeim eftir. Ekki bara mótmæli. IP-talan er sammála að mótmæla þeim atriðum sem þú telur upp í svari þínu og þakkar þér fyrir svörin.

Mótmælandi (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 00:35

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég er til í að mæta :)

Óskar Þorkelsson, 31.5.2009 kl. 09:03

7 Smámynd: Jón Magnússon

Það er vissulega ástæða til að mótmæla og ég tek undir með þér þegar þú talar um þá aðila sem lugu sig inn í ríkisstjórn. Það má líka segja tróðu sér inn í ríkisstjórn með ofbeldi. Spurningin er hins vegar hvort ekki er full ástæða til að skilgreina nákvæmlega áhersluatriðin sem þarf að gera áður en farið er í mótmæli. Ég er sammála þér að af nógu er að taka en sum mál eru brýnni en önnur. Mér finnst brýnast og hefur fundist brýnast í áratug að verðtrygging verði afnumin og við búum við svipuð lánakjör og almenningur í nágrannalöndum okkar. 

Með síðustu skattahækkunum með tilheyrandi hækkun á verðtryggðum lánum tel ég ríkisstjórnina hafa rofið grið gagnvart fólkinu í landinu og það þurfi að koma h enni frá.

Jón Magnússon, 31.5.2009 kl. 12:36

8 identicon

Ansi er Jón eitthvað stóryrtur þegar hann talar um að aðilar hafi logið sig inn í ríkisstjórn ! Það er aldeilis! Ef hann er búinn að gleyma því þá er nýbúið að kjósa og þeir flokkar sem fara með ríkisvaldið núna eru með meirihluta. Þeir hafa ekkert gert undir þessum kringumstæðum sem hinir gömlu hrunflokkar hefðu ekki gert ef þeir réðu.

Væri hollt fyrir hann að rifja upp hverjir bera mesta ábyrð á þeirri spillingu sem kom okkur í þessa erfiðleika. Farðu í naflaskoðun Jón !

Ína (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 13:34

9 identicon

Ína, fyrirgefðu, en þó Jón sé í vissum flokki hefur hann fullt leyfi til að hafa persónulegar skoðanir eins og við hin.  Honum getur líkað verið ofboðið og viið hin höfum ekkert leyfi til að þagga niður í einum eða neinum og skiptir flokkur engu þar um. 

EE elle (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 14:21

10 identicon

Og líka, ég hef oft lesið bloggið hans Jóns og veit að hann hefur barist gegn verðtryggingu og þ.a.l. hlýtur það að vera heiðarlegt að hann tjái sig um það með okkur.  Vildi að Steingrímur J. gerði það líka þar sem ég hafði tröllatrú á honum.

EE elle (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 14:39

11 identicon

Átti að vera: Honum getur líka verið ofboðið.

EE elle (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 14:47

12 identicon

Það skiftir ekki máli hverjir fara með völdin í dag því bak við allt stjórnkerfið er það Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem ræður. Þökk sé Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni sem gerðu samninginn við sjóðinn. Það þarf mikla hugarfarsbreytingu hjá Íslensku þjóðinni ef breyting á að náðst þ.a.s. þjóðin þarf að finna 32 einstaklinga a.m.k sem væru algerlega óháðir sérhagsmunum. Er þessi fjöldi til að  hér á landi til að minna meirihluta á Alþingi? Ef svo er hvaða einstaklingar eru þeir?

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 16:08

13 identicon

Ef einhver kemst í valdaaðstöðu með vísvitandi  lygum, þá er hann sannarlega orðinn brotlegur við lög.

Jón Magnússon, ert þú að segja að þessi ríkisstjórn sé ólögleg?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 17:33

14 identicon

Jón Magnússon sagði í kommenti hér á undan, að núverandi stjórnarflokkar hafi komist til valda með lygum og ofbeldi. Hann ætlar greinilega ekki að svara því hvort slík stjórn geti verið lögleg.

Fyrir mörgum árum sagði hann sig úr Sjálfstæðisflokknum og hefur örugglega haft ærna ástæðu til. En nú er hann kominn heim aftur og hefur aðlagað sín siðferðisviðmið að þessum gjörspillta flokki sem lagði þjóðfélag okkar í rúst.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 22:57

15 identicon

Haraldur, fannst pínu-sætt þetta með IP-töluna.  Held ég noti það sem dulnefni. 

IP-Tala (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband