Leita í fréttum mbl.is

Með 237 hunda heimahjá sér

A complaint from a visiting workman led to the discovery on Tuesday of 237 dogs living inside a 70-year-old woman's Southside home.

Corpus Christi Animal Care Services department officers spent about six hours wrangling the dogs -- mostly Pomeranians with some Yorkshire terriers, two standard poodles and several others. Officers took the dogs to the city's kennel, said Kelli Copeland, the department's manager.

It is a violation of a city ordinance to have more than six animals at a residence unless a property owner secures a kennel license. It was unclear Tuesday night if the homeowner would face charges. The woman who lived in the home in the 6000 block of Edgewater Drive told authorities she bred the dogs, Copeland said, and the woman likely has been acquiring dogs for years. Most of the animals appeared to be adequately fed, but many appeared to be suffering from the close quarters.

"They had plenty of food and plenty of water but were not living in healthy conditions," Copeland said. "Many were covered in feces and urine. I think she slowly accumulated them to where they were more than she could handle."

Of the 237 dogs, 236 will be housed in the city's kennel until a hearing in court likely to be scheduled Dec. 27 or Dec. 28. Officials had to euthanize one of the dogs because of its poor condition. The woman told authorities the dog recently wandered to the house.

The city plans to ask for custody of the dogs so they can be given to animal rescue groups. The animal care department first was told about the dogs from a workman called to the home who complained Monday after visiting.

Monday's complaint was the first against the woman, who likely will face several citations from the city, Copeland said. She could not be reached for comment Tuesday.

"The homeowner is a very nice lady; I think she loved her dogs," Copeland said.

Contact David Kassabian at 886-3778


Hverjir standa fyrir þenslu?

Einu sinni í fréttum voru sýndar biðraðir almennings við opnun Toys´r us í sambandi við þenslu og verðbólgu í þjóðfélaginu. Þetta var saklaust myndskeið en þó mjög skiljanlegt. Hvernig á að myndgera þenslu í samfélaginu? Sko...þeir sem halda þessari þenslu eru stóru stelpurnar og strákarnir. Hvað á ég með því? Þeir sem grafa skurð fyrir 100.000 krónur (svart), þeir sem nota olnbogafeiti sem greiðslu eru þeir sem eiga reiðufé til að borga neyslu, lúxus lífstíl, jeppa og snjósleða rekstur og aðra hégóma. þetta er sá hópur sem heldur uppi vísitölu á þeim þáttum sem eru mældir.

 

Hinsvegar bendi ég ykkur á fjárfesta í dóti sem lýtur úr eins og hand-tölva, boli eða peysur merktar verðkönnun til að lækka bæði matarkörfuna og vísitölu.

 


Hvenær ætlar 36 ára karlmaður að hætta að vinna?

Ég veit ekki um í hvaða umhverfi þið eruð en í kringum mig er nokkuð sérstakur hópur. Við erum fædd á árunum 1968-1972. Þessir kunningjar og vinir eiga það sameiginlegt að ætla sér að hætta hinni hefðbundnu 9-17 vinnu í kringum fimmtugt! Já, þið lesið rétt! Fólk er farið að leggja fyrir, nota arfgreiðslur og vinna eins og þrælar til að ná þessu markmiði. Í mínum eyrum eru slík markmið alls ekki galinn og ná minni athygli. Hinsvegar er spurning hvort kökusneiðin sé góð á meðan við borðum hana eða þegar við höfum klárað hana. Við gætum líka misst kökuna í gólfið á meðan við erum að borða hana.

Árið 2047 eru leikskólabörn að gera áætlanir fyrir þjóðina

Leikskólann í forgang

 

Nú er svo komið að ég þekki vel til þessa einkarekna leikskóla sem Bryndís vitnar í. Þannig er að starfsfólkið er hreinlega að bugast og keyrir sig áfram á samviskunni einni saman. Þreytan er svakaleg.

Að fá fólk í vinnu sem er með að meðaltali 150.000 þús í laun gerir það að verkum að sumir hverjir nenna ekki að mæta vegna kulnun í starfi og lágra launa. Í fréttum heyrði ég að sumt starfsfólk mætir ekki í vinnu, lætur engan vita og því er alveg sama. Þegar það er hringt í það er það farið að vinna í annarri vinnu fyrir sömu laun og minna álag. Á meðan er faglært fólk á leikskólunum að keyra sig út andlega að láta hlutina ganga upp samviskunnar vegna. Þetta faglærða fólk brennur út og kulnar alveg eins og aðrir. Vandamálið er þannig að þeir sem ekki eru í kringum leikskólana eða hafa börn á leikskólanum gera sér engan veginn grein fyrir aðstæðum. Kæru foreldrar.....við verðum að styðja við það fólk sem leggur sinn tíma og sál í þessi störf. Í alvörunni. 


Gæsveiði er frábært sport

Skotveiði sameinar okkur feðgana og undirbúningur hverjar ferðar er stór hluti. Að fara síðan út á tún eða upp á heiði með byssuna er frábært, að ná fugli er algjör bónus. Hinsvegar eru til veiðimenn með veikleikann drápseðli sem aðaldrifkraft. Þeir sem eru haldnir þessum veikleika eru mjög líklegir til að skjóta allar tegundir fugla, þ.m.t. Blesgæs. Allir sem stunda þessa veiði vita að nú eru stór svæði í útleigu og hef ég áreiðanlegar heimildir að leigan sé allt frá 300.000 til 800.000. Þessir leigutakar skaffa veitingahúsum villta bráð í hinu vinsælu villibráðarhlaðborð. Þannig svala þeir sínu drápseðli og fjármagna sína veiði. Hinsvegar vita líka allir veiðimenn sem skotið hafa á suðurlandi 70-80% af veiðinni er Blesgæsaveiði. Nú var hún fyrst friðuð í fyrra og því ekki kominn mikil reynsla á hversu vel menn virða þessa friðun. En almenn skynsemi segir mér að menn sem hafa það markmið að fjármagna skotveiði með sölu, eru einnig haldnir drápseðli láti á auðveldan hátt undan þeirri freistni að skjóta Blesgæs. Þess vegna verðum við skotveiðimenn að smita út frá okkur að virða þessi bönn áður en alþingismenn og ráðamenn fari alla leið og setji lög, þannig missum við skotveiðimenn stjórnina á sportinu. Við getum spurt okkur hvernig við skotveiðimenn mundum haga okkur ef við værum golfarar. Það sport stunda ég líka og þar er treyst á sportmanninn að hann geri rétt. Það er gert til að komast hjá svokölluðu forgjafarsvindli. 

Einnig vona ég að bændasamtökin geri nú eitthvað frumlegt og búi til einhvern gagnagrunn þar sem bændur geti á auðveldan hátt auglýst veiðileyfi, eða á einhvern hátt leitt saman veiðimenn og þá bændur sem vilja nýta sína auðlind á sama hátt og þeir gera í dag í lax- og silungsveiði.  


mbl.is Áhyggjur af blesgæs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja...er tími kominn til að blogga á ný

Vorið og sumarið gerði það að verkum að ég hætti að blogga, bætti á mig nokkrum kílóum og við fluttum úr vesturbæ Kópavogs í austurhlutann. Nú er minn maður kominn í Herþjálfun með blóðbragð í munninum. Nú refsar maður sér illilega fyrir kæruleysið. Nú er veturinn í nánd og þá förum við íslendingar að kveðast á í gegnum bloggið. Það allra heitasta er Land Rover í innkeyrslum, HB hættur við að fara út á skaga og lömbin okkar krydduð lifandi. Allt á fullu í efnahagslífinu, bankarnir að verða óðir í lífstíl ríka og fræga fólksins. Eitt það áhugaverðasta í pólitíkinni er hversu glataðir framsóknarmenn eru í stjórnarandstöðu. Þeir hefðu bara átt að halda sér í stjórn....já þetta verður bara gaman í vetur.

 


Háður tækninni....sussusvei

Við fjölskyldan höfum verið að flytja okkur um set sl. vikur og erum að taka upp úr síðustu kössunum. Erum nýkominn aftur með internet samband og það er eins maður kúplist aftur inn í samfélagið. Að fá hvorki Moggann á morgnana eða geta hvorki kíkt eða sent pósta er ný tilfinning. Það er eins og maður sé orðinn háður þessari tækni...sussusvei! Þá fer maður aftur að bulla hérna og þykjast vita allt og ekkert. Bloggið er nefnilega svona einskonar "group-therapy" fyrir mig og marga aðra. Það er bloggað bara til að blogga og síðan er bloggað um tilgang bloggsins bara til þess að blogga. Nú meiri blogg vitleysan.


Vandræði í leikskólamálum í Kópavogi!

Nú er nýtt rekstrarfyrirkomulag að fæðast hjá nokkrum leikskólum í Kópavogi. Ekki að ég viti nákvæmlega hvernig reksturinn mun líta út en á hverjum morgni sem ég kem við í leikskóla dóttur minnar, Urðarhól í Kópvogi berast mér nýjar fréttir. Ekki eru þær að betri toganum heldur snýr að uppsögnum starfsfólks og mikilli óánægju, ekki nýjar fréttir Ég gaf mér tíma til að ræða við aðstoðarleikskólastjóra í morgun og grennslaðist fyrir um hvað væri í gangi. Starfsfólk bregst illa við breytingum, sérstaklega þegar mikil óvissa ríkir sem bendir til vissrar óreglu í mannauðastjórnum. Stefnumótun og starfsaðstaða er hönnuð af fólki sem vinnur ekki í leikskóla og vita einfaldlega ekki betur. Kemur í ljós að þorri leikskóla er hannaðir þannig að hljóðmengun er yfir hættumörk þegar allt er í fullum gangi. Besta sönnun þess er þegar konan mín kemur heim á kvöldin, en hún er leikskólakennari að mennt og starfaði hjá Kópavogi í mörg ár en er kominn til Reykjavíkur. Hún var andlega búinn eftir vinnudaginn vegna hávaða og áreiti. Þannig sýnist mér að stærsta vandamál forsvarsmanna leikskólaráðs er að snúa sér að nútíma stjórnunarháttum, svona eins og nútíma einkarekin fyrirtæki sem starfa í gríðarlegu samkeppnisumhverfi. Hvernig ætli það skulu vera? Í stuttu máli þetta: Fá utanaðkomandi, hlutlausan stefnumótunar ráðgjafa til að leiða stefnumótun hvers leikskóla (fyrirtækis) fyrir sig. Finna hagkvæmustu leiðirnar til að gera starfsfólk ánægt innan þess ramma sem fjármagn leyfir. Á meðan að ákvarðanir um húsnæði, starfsaðastöðu, stefnumál eru teknar inn í lokuðum skrifstofum í gamaldags stofnunum verður aldrei hægt að gera nógu nákvæm markmið. Það er skilda stjórnenda að taka mið að vilja sínas starfsfólks á öllum hæðum skipurits stofnunarinnar. Þannig skal Gunnar bæjarstjóri hugsa um hag yfirmanns leikskóla bæjarins, hann hugsar um hag leikskólastjóranna sem áfram hugsa um hag starfsfólk sem síðan hugsar um hag barnanna.
Þessi mál eru í mikillri óreiðu hjá Kópavogsbæ og tími til kominn að spíta í lófanna og gera flotta hluti á meðan starfsfólkið er ennþá í vinnu og ekki búið að segja upp...þetta getur verið þræl gefandi og skemmtileg vinna.

Kominn landsins, stend í flutningum...

..þess vegna er ég að selja sumt að því sem við viljum endurnýja og um leiða að rýma. Nota þessu síðu sem link fyrir áhugasama af Barnalandi.is sem virkar vel sem sölustaður fyrir notuð húsgögn.

Hér kemur auglýsingin:

Queen Size Rúm með Antik Gafli, 9 ára gömul mubla sem var keypt frá versluninni Línunni á kr. 140.000. Fæst á kr. 30.000 gegn því að vera sótt. Konan vitlaus að ég vilji selja gaflinn en þetta er mikil mubla. Dýnan í frábæru lagi. Set myndir hér inn að neðan.

Borðstofuskápur og borð í stíl fæst á kr. 15.000 gegn því að vera sótt.

Að síðustu Antik skápur sem fæst gefins gegn því að vera sóttur.

Verð líklegast tölvusambandslaus næstu daga vegna flutnings. Þeir sem vilja taka eitthvað af þessu endilega hafið samband við okkur hjónin í síma 820 2884 eða 840 1416. Nýi staðurinn er Baugakór í Kópavogi.

allt í einniBorðstofuskápur og borðAntik skapurBorðstofuskápurrum með gafli


Oft eru hlutirnir einfaldari en maður heldur.

Sem dæmi er ég einfaldari en ég hélt...svona frekar á mörkunum :-)

Það kom til mín maður í dag, "sleggja" nokkur, og hreytti út úr sér skapvonsku gagnvart núverandi kvótakerfi. Gaman væri að vita hvort margir hér á blogginu vita í raun hvernig kvótakerfið virkar í raun og hvað sé ekki í lagi við þetta kerfi? Vitneskja og vonbrigði "sleggjunnar" um kvótakerfi íslands einkenndist af einlægni og hans sál var niðurbrotinn. Mér datt í hug kvótakerfið eftir að Geir Haarde tók svo ljúflega til orða á Þingvöllum í dag að við ættum að horfa fram á veginn og leysa þau vandamál sem fyrir okkur er sett. En að breyta kvótakerfinu okkar yfir í einfalt ríkisrekna kvótaleigu er alltof flókið mál...eða? Oft held ég að hlutirnir séu í mörgum tilvikum einfaldari en maður heldur, en þeir sem nenna ekki að standa í því að breyta og fara út fyrir sinn þægindahring eða sjá sína hagsmuni hrynja í verðgildi nota og flækjustig sem vörn. Ég var nokkuð sammála vinum mínum "sleggjunni" að oft eru hlutir einfaldir en á móti er líka einfalt að gera þá flókna. Ég held að Samfylkingarmenn ættu að slaka á mosa-ábyrgðinni og snúa sér að því sem heldur okkar þjóð á floti, fiskveiðar og kerfið sem þar er í gangi. Nokkuð sem hefur gleymst í umræðunni finnst mér.

Síðan finnst manni að það hljóti að vera flókið að mynda ríkistjórn, en það er það ekki. Líka hlýtur það að vera flókið að taka 74 milljarða króna lán til að kaupa Hollenskan banka, en það er það ekki...svona mætti lengi telja. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband