Leita í fréttum mbl.is

Hvenær ætlar 36 ára karlmaður að hætta að vinna?

Ég veit ekki um í hvaða umhverfi þið eruð en í kringum mig er nokkuð sérstakur hópur. Við erum fædd á árunum 1968-1972. Þessir kunningjar og vinir eiga það sameiginlegt að ætla sér að hætta hinni hefðbundnu 9-17 vinnu í kringum fimmtugt! Já, þið lesið rétt! Fólk er farið að leggja fyrir, nota arfgreiðslur og vinna eins og þrælar til að ná þessu markmiði. Í mínum eyrum eru slík markmið alls ekki galinn og ná minni athygli. Hinsvegar er spurning hvort kökusneiðin sé góð á meðan við borðum hana eða þegar við höfum klárað hana. Við gætum líka misst kökuna í gólfið á meðan við erum að borða hana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þessi hugsun um að fara af vinnumarkaði um miðjan aldur er mjög algeng hér í bretlandi á þessu svæði sem ég bý á. Fólk setur snemma upp þau plön og allt miðast við að þurfa ekki að vinna..eða mæta til vinnu eftir fimtugt og gera þá bara allt sem fólk elskar að gera. Hins vegar komast ekki allir þangað, lífið svíkur um tíma og heilsan brennur stundum upp í látunum og svo kemur jafnvel í ljós að miklar og nánar samverur með makanum er hreint ekkert eftirsóknarvert fyrir suma sem hafa verið of mikið að heiman og gleymt að ræta sitt.. Já það er margt í mörgu Halli minn. Held þú ættir samt ekki að láta líða of langt þar til þú mundar pensilinn..hann gerir ferðina skemmtilegri og innilega gefandi. Eða það finnst mér allavega. Ég hélt út í heim að læra listir og svolitla heimspeki 37ára svo þetta er alveg hægt.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 5.10.2007 kl. 08:08

2 identicon

Ég var að velta því fyrir mér hvort að þú eigir mublurnar ennþá?

Sunnsla (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband