5.3.2009 | 14:40
Afnám verðtryggingar og niðurfelling skulda kostar ríkið, bankanna og lífeyrissjóðina ekki krónu!
Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri, hagfræðingar Samfylkingarinnar, hagfræðingar Lífeyrissjóðanna, stjórnendur íbúðarlánasjóðs og stjórnendur bankanna okkar "ríkisbankanna" tala allir sama tungumáli þegar alvöru hugmyndir koma fram til að koma leiðréttingu í gang gagnvart íburðarlánum íslendinga hvort sem er í íslenskum krónum eða erlendri mynt. Það er að aftureikna erlendu lánin og breyta yfir í krónur. Það er að afnema verðtryggingu af fasteignalánum og það er að leyfa lántakendum að njóta þeirrar niðurfellingar sem var við millifærslu lána milli gömlu og nýju bankanna. Það tugumál sem þessir snillingar nota er "hræðslutungumál". Hver hefur ekki heyrt þessa setningu; "...slíkar hugmyndir eru óraunhæfa þar sem slíkt kostar xxxxxx fyrir 700 milljarða. Það borgar sig að hugsa um eitthvað annað því slíkt er óraunhæft". Staðreyndin er hinsvegar sú að þetta kostar ekki þessar stofnanir ekki eina krónu. Þegar við tölum um kostnað þá skiljum við það þannig að við tökum upp veskið og borgum einhverjum eitthvað...rétt? Ef hinsvegar mitt fyrirtæki fer í aðgerðir sem gerir það að verkum að launin mín lækka um 10.000 krónur þá er um að ræða TEKJUSKERÐINGU.
Þannig að rétt skal vera rétt. Setning snillingana á þannig að hljóma; "...slíkar hugmyndir eru óraunhæfa þar sem slíkt gerir það að verkum að við verðum fyrir 700 milljarða TEKJUSKERÐINGU...."
Þá getum við í kjölfarið spurt okkur hvort við viljum að þessu milljarða stofnanir sem eru í engir hættu til lengra tíma litið verði fyrir TEKJUSKERÐINGU eða að íslendingar geti undir venjulegum kringumstæðum aldrei eigast fasteign eða greitt upp sín lán? Í mínum huga er það ekki spurning að kerfið skal vera til þess gert að við getum notið þess að búa á íslandi, ef ekki skal endurskoða kerfið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2009 | 13:48
Kemur ekki á óvart!
![]() |
Snorri formaður norrænna lögreglusamtaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2009 | 18:12
Af hverju notafærði Davíð Oddson sér lög um bankaleynd?
Getur verið að Davíð hafi treyst á andstæðinga sína að afnema bankaleynd með því að beita henni fyrir sig þegar hann var tekinn á teppið hér um daginn. En eins og margir vita, vildi hann ekki útskýra frekar út sín rök fyrir því hvers vegna Bretar beittu hryðjuverkalögum á Kaupþing. Getur það verið að Davíð hefur alltaf viljað banaleynd verði afnumin til þess að fjölmiðlar og aðrir geti flett ofan af þeim pólitíkusum sem hann veit að hafa fengið óeðlilega fyrirgreiðslur frá bönkunum á þeim einkahlutafélögum sem þeir eiga í. Síðasta Davíðs Kastljós á RÚV var nokkuð ljóst að Davíð vissi um slík atvik en treysti sér ekki til þess að vera blaðra því. hmmmmmmm.........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2009 | 01:20
Ingibjörg er skörp kona!...en....
...þegar svona kona eins og hún þarf að takast á við heilsubresti, og öllu sem því fylgir er það forgangsmál að ná heilsunni. Heimurinn er ekki að farast þó svo að margir haldi svo. Að sjálfsögðu tekur hún Ingibjörg sér frí frá stjórnmálum og vinnu og hugar að sinni almennri heilsu, sinnir sér og sínum eins og allt fólk gerir þegar slíkar aðstæður koma upp. Síðan eftir 2-3 ár kemur hún aftur í fínu formi.....hennar tími mun koma. Hinsvegar held ég að margir sjálfstæðismenn komi til með að kjósa samfylkinguna ef þeir sína staðfestu og trúverðugleika. Skítaliktin er nefnilega orðin það mikil undir bláa teppinu að því er varla viðbjargað....en batnandi mönnum er best að lifa.....hver veit?
Ingibjörg.....taktu þér frí og komdu þér í form...þetta blessast allt.
![]() |
Jóhanna og Ingibjörg með fund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2009 | 21:44
Heyrðu, er kannski möguleiki....ha..nei..nei...ég skil auðvitað!
Ég fór að ímynda mér samtalið sem slíkt. Ingibjörg spyr Jens; Heyrðu...við vorum að spekúlera...sko...ég og Steingrímur..og margir fleiri...hérna.....hérna....hvort það væri möguleiki að að hafa svona peninga, eða gjaldeyrissamstarf milli okkar. Ha, ekki raunhæft.....nei auðvitað ekki, við vorum líka bara svona að velta þessu fyrir okkur, við erum alltaf eitthvað pæla.
pisssst, Steingrímur....þetta gengur ekki...þeir vilja ekki vera memm, segja okkur vera gráðuga þjóð sem þarf að siða til og vilja ekkert með okkur hafa. Hvað gerum við nú?
En þurfum við nýjan gjaldmiðil?
Pælið þá í þessu; http://hhbe.blog.is/blog/hhbe/entry/807966/
![]() |
Telja gjaldeyrissamstarf Íslands og Noregs óraunhæft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 22:27
Hvað finnst ykkur um þessa suðu;
Ég styð mann sem ég þekki ágætlega, Bjarna Benediktsson í formannssæti sjálfstæðisflokksins. Ég mun að óbreyttu ekki kjósa sjálfstæðisflokkinn. Ekki mun ég heldur kjósa Samfylkinguna og því allra síður VG. Ég styð Steingrím J. og hef ekki mikið álit á Ögmundi. Jóhanna hefur verið frábær í félagsmálum og ég treysti henni þar. Davíð Oddson er fínn seðlabankastjóri og kom vel út úr Kastljósi en staðfesti mína skoðun á að XD þarf hvíld. Samfylking eru tækifærissinnar og óstaðfestir, þó er Össur traustsins verður. Hann sýnir á sér sínar mannlegu hliðar, óhræddur við að vera hann sjálfur. Ingibjörg er úti sem og FJÖLMARGIR aðrir reyndir þingmenn. Við einfaldega þurfum kraft í þetta og kraft í það að styðja við velfarnað íslenskra heimila.
Fyrirtækin koma með að spjara sig þar sem hið mannlega eðli um gróða og ávöxtunarkröfur er hvati fjölmargra klókra íslendinga sem elska viðskipti. "Eins manns dauði, annars manns brauð".
Það sem ég kem til með að kjósa er sá hópur sem lofar stöðugleika í gjaldeyrismálum, stöðugleika í þjóðfélaginu. Þessir íslensku öfgar gagna einfaldlega ekki upp. Sá hópur sem styður Hagsmunasamtök Heimilanna fær mitt atkvæði. Sá hópur sem eru óhræddir við að fara út fyrir hið hefðbundna og koma með frumlegar tillögur um framför og stöðugleika fær mitt atkvæði.
Næstu jólabók, "Rínt í hrunið" eftir Davíð Odsson verðu lesin næstu jól :-)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 15:45
Rétt...en rangt...og rétt
Það á að skylda alla ríkisbanka að færa öll húnsæðislán yfir til íbúðarlánasjóðs. Síðan á að fella niður verðtryggingu. Afnema 20% af skuldum er glapræði og engin lausn til framtíðar.
Síðan er furðulegt að Forsætisráðherra skuli líka að vera tala um kostnað þegar svona tillögur koma upp á borðið. Það rétta er að það er verið að tala um tekjuskerðingu. Enn og aftur, hver hefur efni á að taka á sig tekjuskerðingu. Ekki eru það fjölskyldur þessa lands sem eru að brenna inní í verðbólgu og verðtrygginga brjálæði!
![]() |
Setur Íbúðalánasjóð á hausinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2009 | 17:50
Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum á villigötum, en vilja vel.
![]() |
Vilja að lánstími verði tvöfaldaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2009 | 23:19
Getur þú aðstoðað mig?
Mig langar í svör við eftirfarandi spurningum:
1. Hver ákveður laun forstjóra lífeyrissjóðanna?
2. Eru laun þessara forstjóra réttlát? Ef svo, hvers vegna?
3. Hver gefur forsvarsmönnum lífeyrissjóða heimild til þess að ráðstafa fé okkar til fárfestinga? Ef svo er, hversu rúm er slík heimild?
4. Hverjar eru grundavallareglur lífeirssjóðanna? Erum við að uppfylla þær reglur?
Ástæðan fyrir þessum spurningum mínum hafa sér skýringu. Ég fór á einstaklega skemmtilegan fund í dag með einstaklingi sem er kominn á eftirlaunaaldur. Einnig á ég ættingja sem er 85 ára á árinu. Eftir að hafa spjallað við þessa báða aðila varð mér ljóst að þarna er stór maðkur í mysunni. Eldra fólk kvíðir þess að verða enn eldra. Ástæðan er áhugaleysi ungs fólks og þeirra sem stjórna landinu. Að láta tvo níræða menn deila 40 fm. herbergi án nokkurrar aðstöðu er skömm. Þessir tveir menn hafa alla sína æfi unnið sem sjómenn og byggt upp okkar dýrmæta gjaldeyrisforða.
Að við unga fólkið, og forsvarsmenn lífeyrissjóðanna höfum ekki sæmd til þess að búa eldri borgurum fyrir afburða aðstöðu og þjónustu er skömm. Ég sem er 37 ára get ekki annað sagt en að með þessari framkomu er vonlaust að láta sér hlakka til þess að njóta ávaxta erfiðis um ævina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2009 | 20:27
"Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt"
Mér datt í hug að skella þessu bloggi fram eftir að ég fylgdist með ógnvekjandi umfjöllun um bótakerfi VíS trygginga til fjölskyldu sem lentu í þeim hremmingum að lenda í hræðilega umferðaslysi með hræðilegum afleiðingum. Mikið óskaplega held ég að það þurfi að skerpa á lögum gangvart þeim sem vilja stofna og reka tryggingarfélag. Óréttlætið í þessu tilviki gerir mann æfan og óskaplega reiðan út í kerfið. Reiðin getur verið svo mikið að menn missa sig gjörsamlega. ´Sumt fólk þarf einfaldlega ekki áfengi til þess að breytast í svín!
Hugsið ykkur að menn skuli semja texta og skilmála í smátt letur (lögfræðingar) einungis til þess að geta átt auðveldari með að villa fyrir fólki og geta grætt meiri peninga."Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt" er slagorð TM. Hversu villandi haldið þið að slík fullyrðing sé?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2023
- Júní 2020
- Mars 2018
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Október 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Nóvember 2006
Bloggvinir
-
godsamskipti
-
gummisteingrims
-
andres
-
dofri
-
sigmarg
-
gattin
-
agustolafur
-
ellyarmanns
-
emmgje
-
finnurtg
-
tommi
-
hipporace
-
arnheidurmagg
-
formula
-
baldvinj
-
launafolk
-
dullur
-
gisgis
-
eirikuro
-
erla
-
folkerfifl
-
fridrikof
-
ulfarsson
-
gerdurpalma112
-
gudni-is
-
gullvagninn
-
jarnskvisan
-
id
-
fun
-
jamesblond
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
ludvikludviksson
-
magnusmar
-
marinogn
-
maggimur
-
hux
-
rrs
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
sigurgeirorri
-
sigurjons
-
snorrima
-
spurs
-
vala
-
thordisb
-
tbs
-
thrudur
-
vitinn
Tenglar
Frábær myndbönd
- Frábært gamalt myndband frá Jeremy Clarkson um Ísland Nokkuð skemmtileg afþreying!
Hversu biluð erum við?
http://www.psychiatry24x7.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Taktu þátt í skoðunarkönnun!
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Ritstjóri NPR hættir eftir niðurskurð
- Kepptust um að kaupa úr einkabókasafni Nick Cave
- Hélt kveðjutónleika fyrir fáeinum vikum
- Ozzy Osbourne látinn
- Hvarf sporlaust í Noregi
- 21 barn hefur látist úr vannæringu og hungri á síðustu þremur dögum
- 27 látnir eftir að orrustuþota brotlenti á skóla
- Leikari úr The Cosby Show drukknaði