Leita í fréttum mbl.is

Ætlum við að vera í viðskiptum við útlönd? Er dæmið flókið?

Það er nokkuð ljóst að ef við hér á íslandi höfum tekið þá ákvörðun að vera hluti af hagkerfi heimsins. Við flytjum út afurðir og flytjum inn það sem við viljum. Einfalt ekki satt? Til þess þurfum við gjaldmiðil. Við höfum íslenskar krónur. Árið 1912 var 1 isk = 1 dönsk kr. Síðan fórum við af stað. Við seldum, keyptum og hið hjólin snérust í áratugi. Árið 1981 urðum við síðan að gengisfella krónuna vegna þess að hún var orðin svo veik. Þá aftur varð 1 isk = 1 dönsk kr. Jæja, við hljótum að hafa lært eitthvað á þessum 69 árum til þess að lenda ekki aftur í þessu bagalegu gengisfellingar-vitleysu. jæja, við byrjum bara aftur. Þann 19. febrúar 2009 er síðan enn á ný 1 dönsk króna = 19,44 íslenskar krónur. Úpps, við höfum ekkert lært frá því 1912. Ætlum við þurfum ekki að gengisfella aftur?

Þessi einfalda staðreynd kennir okkur að gjaldmiðilinn okkar er góður ef við ætlum að einangra okkur og ekki taka þátt í erlendum viðskiptum. En það verður ekki. Því miður verðum við að sætta okkur við það að skipta um mynt til þess að lenda ekki ítrekað í þessum dæmalausa vítahring veikingu íslensku krónunnar.  Er þetta flókið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband