29.12.2009 | 22:29
Ég trúði valla þessum rituðu orðum.....ótrúlegt!
í Fréttablaðinu í dag var grein með fyrirsögninni; "Opið bréf til Jóhönnu". Þar er farið miklu lofi um ágæti Jóhönnu. Hinsvegar koma aldrei fram hvaða Jóhönnu hann átti við en eftir að hafa lesið greinina þá var ég ekki viss um að ég skildi greinarhöfund rétt. Ég geri ráð fyrir að hann hafi hugsað til forsætisráðherrans okkar, Jóhönnu Sigurðadóttur.
Þá segir í greininni:" Til að geta komið landinu á réttan kjöl og byggja upp velferð vantaði lykilinn: Peninga. Og peninga átti þjóðin ekki. Það var búið að ræna okkur. Að taka til. Á meðan stóð píndur og örvæntingarfullur almenningur og heimtaði að komast aftur inn í þjóðfélagið; vinnustaði og heimili. Og þegar það gerðist ekki strax, byrjaði fólk að púa á ykkur Steingrím og félaga og kyssa vönd glæframannanna á Alþingi. Þessu óréttlæti hafið þið tekið af þolinmæði og prúðmennsku. Þið hafið sýnt skynsemi. Skilyrði að til að leysa frystingu eigna og gjaldeyrismála verðum við að greiða skuldir erlendis, opna fyrir samstarf við Evrópu og taka upp evru. Þessi tvö mál eru lykilmál sem byggja upp ríkisfjármálin ásamt eflingu atvinnumarkaðar og almennrar velferðar svo og að styrkja peningamál almennt."
Eftir að hafa lesið þennan hluta, var ég gapandi. Með galopinn munn og orðlaus. Ég hugsaði með mér, getur þetta í alvörunni verið skrifað sem lof eða var greinin skrifuð sem grín?
Á meðan að núverandi forsætisráðherra, f.v. Félagsmálaráðherra, Jóhanna gæti hafa gert góða hluti í gamla, gamla daga þá eru dagar hennar og Steingríms taldir. Því til rökstuðnings þarf ég bara að nefna eitt af LOFORÐUM hennar og Steingríms; AÐ SLÁ SKJALDBORG UM HEIMILIN!
Nú tæpu ári seinna hefur Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. ekki gert NEITT annað en að vernda of slá skjaldborg um fjármagnseigendur og fjármálastofnanir. Þegar þingmenn spyrja fá þeir engin svör. Þegar þingmenn vilja upplýsingar og umræður þá er gert lítið úr því. Hegðun Jóhönnu og Steingríms eru í áttina að því sem einræðisherrar væru stoltir af. Þessu til stuðnings getið þið lesið blogg frá Agli á eyjunni með því að smella hér.
Ég hefði trúað einhverjum alþingismanni sem hefði beina hagsmuni að vilja ekki svara þessu sem Egill setur á síðuna sína, eða ætli það sé ástæðan?
Svona í lokin fyrir alla þá sem halda að Jóhanna Sigurðardóttir sé sá aðili sem við eigum að treysta. Smelltu hér.
Hvað hefur þessi staðfasta og örugga Jóhanna gert gagnvart verðtryggðum íbúðarlánum og fyrir heimilin í landinu?
NÚLL!!!!!!
Hér er síðan greinin sem ég er að tala um í Fréttablaðinu 29/12. Lesa grein
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2023
- Júní 2020
- Mars 2018
- Desember 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Október 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Nóvember 2006
Bloggvinir
- godsamskipti
- gummisteingrims
- andres
- dofri
- sigmarg
- gattin
- agustolafur
- ellyarmanns
- emmgje
- finnurtg
- tommi
- hipporace
- arnheidurmagg
- formula
- baldvinj
- launafolk
- dullur
- gisgis
- eirikuro
- erla
- folkerfifl
- fridrikof
- ulfarsson
- gerdurpalma112
- gudni-is
- gullvagninn
- jarnskvisan
- id
- fun
- jamesblond
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- ludvikludviksson
- magnusmar
- marinogn
- maggimur
- hux
- rrs
- sigurdurkari
- siggisig
- sigurgeirorri
- sigurjons
- snorrima
- spurs
- vala
- thordisb
- tbs
- thrudur
- vitinn
Tenglar
Frábær myndbönd
- Frábært gamalt myndband frá Jeremy Clarkson um Ísland Nokkuð skemmtileg afþreying!
Hversu biluð erum við?
http://www.psychiatry24x7.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er gott til þess að vita, að ég var ekki sá eini sem sat opinmynntur og skilningsvana eftir að hafa lesið opna bréfið hans Ingólfs, til Jóhönnu.
Þú segir að Jóhanna hafi gert "góða hluti í gamla, gamla daga". Ég man eftir því, þegar hún neyddi öll sveitarfélög til að byggja félagslegar íbúðir, ég man eftir húsbréfakerfinu. Hvorugt var þjóðinni til framdráttar.
Jóhanna er vafalaust góðhjörtuð gömul kona, en það er bara ekki nóg til þess að verða forsætisráðherra. Ég vorkenni kerlingaræflinum fyrir að hafa látið ljúga sig í þetta jobb, því hún hefur ekkert í þetta að gera. Kannske er þetta bara góðmennska hjá Ingólfi að skrifa svona fallega til hennar?
Jón Ríkharðsson, 30.12.2009 kl. 00:05
Kannski bara bréf til mín sem ég hef látið fara fram hjá mér?
Jóhanna Magnúsdóttir, 30.12.2009 kl. 00:20
Er thettad bara ekki partur af aramotaskaupinu?
Ásta Björk Solis, 30.12.2009 kl. 05:35
Látiði ekki svona þetta eru orð í tíma töluð! Einhver varðað peppa upp Jóhönnu. Hún fær ómaklega útreið og hef ég þó aldrei talið mig neinn aðdáenda hennat. Það skelfilegasta sem gæti gerst værir ný stjórnarkreppa en svikararnir í VG sem geta fellt þessa stjórn kæmust á blöð sögunnar sem handbendi "Hrunamannanna" í sjálfstæðis-og framsóknarfokki.
Viljiði í alvöru nýjar skrumkosningabaráttu? Viljiði virkilega horfa uppá hetjurnar ykkar í "hrunflokkunum" skrifa undir Æseif daginn eftir að þeir komast til valda.
Þið talið mjög óábyrgt og grein Ingólfs er amk heiðarleg tilraun til að benda á augljós atriði einsog ábyrgð þeirra sem nú mótmæla hæst á þingi. Það væri sköndull ef t.d. Sigmundur Davíð kæmist aftur á þing. En ef eitthvað er að marka vælið í bloggurunum hérna þá mun hann fljúga inn svona líka algerlega óverðskuldað.
Gísli Ingvarsson, 30.12.2009 kl. 10:53
Það er alveg dæmigert fyrir okkur þröngsýna íslendinga að arða upp á handónýta ríkisstjórn af því að hinir eru miklu verri. Víst eru þeir verri, en ekkert mikið. Ég kýs ekki þennan flokk af því að þessi maður er í honum. Kannast einhver við svona svör.
Það sem við þurfum að gera er að standa upp öll sem eitt, gleyma pólitískum flokkum og krefjast þess að fjórflokkurinn víki, hefji sína hreingerningu og fari á námskeið í kurteisi, hreinskilni, sannleika og gegnsæi. Á meðan ráðum við hæfar manneskjur í að fara með stjórn landsins. Eins og í fyrirtæki, hæft fólk sem hefur sýnt með skrifum sínum og afstöðu að vera hæft til að leiða okkur út úr þessum ógöngum. Fólk sem á bæði heiðarleika færni og góða eiginleika til að bera.
Látum alla flokkana vita að við Viljum þá ekki við stjórn landsins, ekki fyrr en þeir hafa lokið aflúsun og hreingerningu heima hjá sjálfum sér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2009 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.