Leita í fréttum mbl.is

Sigmundur og 20% er hluti af því besta sem gæti gerst fyrir okkur! Hvers vegna...lestu þá þetta!

Þó svo að ég sé ekki Framsóknarmaður þá er hugmynd Sigmundar og okkar manna eitt af því besta sem gæti komið fyrir okkur.

Hér eru rökin fyrir því; Ef þú hefur verðtryggt íbúðarlán (flestir á hafa þannig lán) þá skulum við ímynda okkur að það standi í 10.000.000.

Vegna brjálæðis útrásavíkinganna og deyfð í eftirliti stjórnvalda hækkaði neysluvísitala neysluverðs á einu ári umtalsvert. Í þeirri vísitölu er td. hækkun tópaks og áfengis. Við þá einu hækkun hækkaði vísitalan um mörg stig. Þannig hefur þessi höfuðstóll á kr. 10.000.000 íbúðarláninu þínu hækkað uppí kr. 14.000.000 á einu ári. Í þessu dæmi hefur höfuðstóll hækkað um kr. 4.000.000. Þannig hefur bankinn aukakröfu á þig upp á 4.000.000 út af þessum brjáluðu aðstæðum. Finnst þér það bara allt í lagi? Þarna hafa myndast kr. 4.000.000 án þess að engin hafi beðið um það eða haft veð fyrir. Það sem Sigmundur vill er að minnsta kosti láta þessa gervikröfur falla niður. Þetta kostar ekki einustu krónu fyrir bankana, en er að sjálfsögðu erfitt að horfa eftir þessari kröfu því þetta finnst bankakerfinu og peningamógúlum fallegur auðveldur peningur.

Þessi tillaga um skuldalækkun er sett fram til þess að ná réttlætinu fram fyrir hönd þeirra sem skulda íbúðarlán. 

Áhættujafnvægi milli skuldara og lánveitanda á íslandi er í miklu ójafnvægi á meðan verðtrygging er á íbúðarlánum.

Til gamans set ég með viðhengi með þessari færslu reiknilíkan í Excel þar sem þú getur slegið inn lánfjárhæð, verðbólgumarkmið og lánstíma. Þannig séð eignarmyndun.

Dæmi: 15.000.000 íbúðarlán í 40 ár, verðtryggt með 4% verðbólgu meðaltal (sem er langt frá því sem við komum til með að sjá næstu ár) og með 5,1% vöxtum. Heildargreiðsla úr þínu veski fyrir þetta lán hefur þú borgað kr.56.943.062. Eignarmyndun er engin fyrstu 300 mánuðina...engin!!!

Eftir 300 mánuði ferðu að borga niður lánið hratt, en af hverju? Jú heildargreiðsla er kr. 127.000 á mánuði af láninu og í endann er greiðslan orðin kr. 237.000 á mánuði af láninu. Þetta þýðir að launin þín verða að hækka í takt við verðbólguna til að eiga möguleika á að geta haldið í við lánið. Heldur þú virkilega að launin okkar komi til með að halda í þessa verðbólgu næstu árin og nái að mæta þessu láni? ALDREI!!! Þá sérstaklega venga þessa hruns. Þér finnst kannski bara allt í lagi að við eigum að borga fyrir þessi mistök í fjármálageiranum? Þetta er bara ekki hægt!

Ef ég set inn lán fyrir kr. 20.000.000 í lánareikninn er upphæðin orðin skelfileg....!

http://hhbe.blog.is/blog/hhbe/entry/828348/


mbl.is Þjónkun IMF við stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Breyta þessu 20% einhverju fyrir fólk sem er komið í vandræði?

Og hvernig á að reikna þessi 20%.  Á maður sem skuldar 20 milljónir en á 10 milljónir á bankareikningi, 10 milljón króna bíl og hús á Spáni að fá jafn mikið niðurfellt og sá sem skuldar 20 milljónir og á ekki neitt?

Á að fella niður 20% skulda þeirra sem hafa tekið lán út á húsið sitt til að kaupa sumarbústað eða til að fjármagna neyslu?

Á að fella niður 20% skulda þeirra sem hafa keypt húsnæði til að leigja út?

Á að fellla niður 20% skulda þeirra sem hafa keypt sér allt of stórt húsnæði og láta þá sem sýndu meiri hófsemi greiða fyrir það?

Þorsteinn Sverrisson, 14.3.2009 kl. 15:50

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Við verðum að hafa eitthvað undir fæti.

ég legg til, að Vertryggingarstuðull frá 1 jan 1998 verði notaður sem frystipunktur.

ástæðan ere, að þá var hafin svikamyllan fyrir alvöru.

Að vísu hófu Lífeyrissjóðir hana fyrr (um 1989 þegar þeir hófu að tala um að þurfa að dreyfa áhættu sinni og fengu leyfi til að kaupa erl verðbréf og kaupa í erl fyrirtækjum. með tilhryrandi útstreymi á gjaldeyri og tilætlaðri hækkun a´verðbótastuðli á höfuðstól og þannig fölsun á eigin fé)

Þessi dagsetning er svona gróflega þegar bankarnir hófu að fikta fyrir alvöru í gerðum samningum milli að ila og þannig brjóta gróflega gegn sínum viðskiptavinum og þannig gerast BORTLEGIR VIÐ LÖG UM SAMNIGA það er frjálsa samningaþ

Miðbæaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 15.3.2009 kl. 23:30

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ef menn eiga pening er það í fínu lagi og þeim til bóta. Enda er það ekki vandamálíð. Ef þeir hafa verðtryggð íbúðarlán sem hafa búið til gerfikröfur fyrir bankanna þá eru þeir jafnir og allir aðrir þrátt fyrir einhverja aðra peninga. Það kemur mér bara ekkert við. Þessi lánakrafa sem verður til við vísitölu neysluverðs er brjálæði. Að lækka höfuðstól um 20% er bara byrjunin í því að láta bankana borga fyrir brjálæðishegðun en ekki láta heimilin gera það. Ekki varð kreppan til vegna ofneyslu heimilanna....ónei!

Haraldur Haraldsson, 15.3.2009 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband