Leita í fréttum mbl.is

Sat fyrir í dag hjá Sænska Ríkisjónvarpinu.

Þetta var nokkuð sérstakur dagur í dag hjá mér. Eftir ábendingu hér á blogginu komu fréttamenn frá Sænska Ríkisjónvarpinu í heimsókn til mín í dag. Þau voru þá nýbúinn að tala við Jóhönnu Sig, og brunuðu eftir mitt viðtal beint til Steingríms J. Þeir eyddu einum 3 tímum með mér og tóku myndir af heimilinu bak og fyrir. Síðan fórum við í viðtal sem tók 2 tíma og greinilegt að fréttamanni þótti mínar skýringar á stöðu mála á íslandi áhugaverðar. Þeim þótti gaman að taka viðtalið á meðan ég tók til í eldhúsinu og vaskaði upp. Síðan þegar spurningar komu tók ég pásu, hugsaði stuttlega, veifaði borðtuskunni fram og til baka og svaraði síðan fullum hálsi. Hún kom ekki að tómum kofanum þegar ég var spurður álits á stöðunni. Það sést nú best á síðustu bloggfærslum hjá mér hver mín afstaða er. En eitt er víst. Vandamálið er til staðar, nú þarf að vinna og leysa það almennilega. Svona í lokin, þá held ég að "Björgunarríkisstjórnin" sé strax farin að gera í buxurnar...guð hjálpi okkur næstu vikur og daga!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Gaman að heyra (lsea) þetta.  Vonandi talaðir þú af rósemi þess, sem VEIT hvar skóinn kreppir.

AF varfærni og þagmælsku um hvaðeina sem ekki þarf að flíka.

Þarf ekkert að efast þar um, þekki þig af góðu.

Strákurinn minn varð fyrir erlendum sjónvarpsmönnum í úttekt á stöðu mála hérlendis.  Þeim þotti furðuleg seiglan og vinnusemi ungs fólks hér.

Ef mér tekst, þá sendi ég þe´r link á það í pósti.

Mibbó

Bjarni Kjartansson, 5.2.2009 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband