Leita í fréttum mbl.is

Ekki vissi ég að Gylfi Magnússon hafi setið í stjórn Samtaka Fjárfesta 2001-2007.

Eftirfarandi las ég á heimasíðu í gærkvöldi, og hafði ekki hugmynd um. 

"Á Íslandi í fyrra varð fyrrum varðhundur auðugra sérhagsmunaaðila að viðskiptaráðherra. Gylfi Magnússon var í stjórn Samtaka Fjárfesta á árunum 2001 – 2007, rétt áður en hann settist í stól viðskiptaráðherra. Ætli að hann hafi klippt á naflastrenginn við sérhagsmuni fjárfesta þegar hann tók að sér að verja hagsmuni almennings?"

Þetta félag er sérstakt að því leiti til að það var opið öllum, hinsvegar var bara ekki tekið á mót almennum umsóknum. Ef einhversstaðar voru reykfyllt herbergi, ef ekki þar...hvar þá.

Fyrir hvaða hagsmuni haldið þið að Gylfi Magnússon sé að berjast þessi misseri?

Hvaða einstaklingar eru með GSM númerið hans í minninu hjá sér?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Karlsdóttir

Hlaut að vera, ekki einleikið hvernig maðurinn hagar sér þessa dagana!

Edda Karlsdóttir, 25.6.2010 kl. 09:52

2 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Ja, þetta er afar athyglivert! Gæti skýrt vaxandi fjölda spurningamerkja sem hefur verið að skjóta upp undanfarna daga um yfirlýsingar hans og viðhorf; Ráðherrann, sem á að gæta almannahagsmuna en ekki sérhagsmuna fárra. Við skulum vona að hann svari ekki bara símaköllum sinna gömlu klúbbfélaga.

Einnig vona ég að fjölmiðlar fari nú að ganga hart eftir því að þessi ráðherra, seðlabankastjóri og aðrir hræðsluáróðursmenn sýni töluleg gögn máli sínu til stuðnings og hætti að tala dylgjur í gátum.

Þetta vekur þó líka spurningar um hvers vegna hann var valinn til ráðherradóms af Samfylkingunni með samþykki VINSTRI alveg grænna. Þar gátu þó greinilega ýmsir verið kallaðir, t.d. þeir sem fóru að sýna flokkslit þeirra í orð sínu og æði eftir að núverandi ríkisstjórn tók við.

Kristinn Snævar Jónsson, 25.6.2010 kl. 17:00

3 identicon

Er Efnahags og Viðskiptráðherra þá bara Úlfur í Sauðargæru?

Gissur Jóhannesson (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 17:53

4 identicon

Hann var einnig stjórnarformaður Samkeppnisstofnunar þar til í fyrra. Hann var líka í úthlutunarnefnd sem kaus viðskiptamann ársins (svo sem Sigurð Einarsson, Björgólf Thor og Jón Ásgeir) og svo framvegis. Hélt ræður hjá Kauphöllinni um að ekki mætti þvinga markaðinn með reglum. Gagnrýndi skýrslu Danske Bank (sbr. skýrslu rannsóknarnefndar, 8. hefti) árið 2007 og sagði að Danir væru bara ekki vanir svona miklum vexti. Og svo framvegis.

marat (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband