Leita í fréttum mbl.is

Hvern á að kjósa í næstu kosningum?

Það sem ég kem til með að kjósa er sá hópur sem einbetir sér að stöðugleika í gjaldeyrismálum og almennum stöðugleika í þjóðfélaginu (í fljótu virðist það vera með upptöku Evrunnar). 

Hópurinn þarf að berjast með öllum mætti að afnema verðtryggingu af lánum (verðtygging er ólögleg á íslandi vegna sögulegum óstöðugleika verðbólgunnar). Fasteignalán skulu vera hefðbundin lán með fasta vexti, ekki breytilega. Með lögum þarf lánveitandi og lántakandi að skrifa undir greiðsluyfirlit sem skal standast. Punktur!

Lagasetning um skyldur lífeyrissjóða þarf að bæta til muna. Ég er persónuelga hrifinn af því að félagsmenn hafi meiri völd gangvart launagreiðslum stjórnenda og öðrum skuldbindingum.

Þá á að setja lög að árlega fari dágóður hluti af peningum lífeyrissjóðanna í uppbyggingu íbúða, þjónustu og umhverfi sem gerir eldri borgurum lífið FRÁBÆRT en ekki bærilegt.

Sá hópur sem styður Hagsmunasamtök Heimilanna fær mitt atkvæði.

Sá hópur sem eru óhræddir við að fara út fyrir hið hefðbundna og koma með frumlegar tillögur um framför og stöðugleika fær mitt atkvæði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... tek undir með þér Haraldur... en ertu búinn að finna þennan hóp?

Brattur, 6.3.2009 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband