Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Tillögur til sátta um lausn á skuldavanda heimilanna

Þeir sem hlustuðu á hádegisfréttir í dag á Bylgjunni heyrðu af fréttatilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna um þá vinnu sem hefur farið fram á undanförnum vikum. Vinnan var þverpólitísk og til eftirbreytni á allan hátt. Hinsvegar er það áhugavert hverju slíkar viðræður skila að lokum og vona ég innilega að þarna taki menn og konur hönd saman og sameinist um mannlegar og heilbrigðar niðurstöður. Þess vegna ákvað ég að setja inn hér þessa skýrslu frá hagsmunasamtökunum og leyfa þér að lesa.

Ég vill þakka stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna fyrir þá vinnu og þá þúsundir klukkutíma sem stjórnarmeðlimir hafa fórnað í baráttuna fyrir réttlæti heimilanna í landinu.

Einnig er ég persónulega ánægður með að einstaklngar sem hafa unnið fyrir hönd stjórnar þessa lands sem og stjórnarandstöðu sé nú loksins tilbúnir að slíðra sverðin og klára þau mál sem snúa að skuldastöðu heimilanna með réttlæti í huga.

Allir vita að hingað til hafa lánveitendur hlotið verndar Samfylkingar og Vinstri Grænna, mörgum til undrunnar. Hinsvegar er tími réttlætis lántaka kominn og mannleg gildi látin ráða ferðinni.

Þú sem lest þetta bið ég að skrá þig í samtökin á www.heimilin.is og styðja þessa baráttu.

Hér er skjalið sem ég vitnaði í.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Live myndir af eldgosi!

http://mila.is/eldgos/ Hér er linkurinn til þess að skoða eldgosið.

Minni á að senda á mig póst, hhbe@simnet.is ef  þú hefur einhverjar skemmtilegar sögur.

 Kv.

Halli


Var Steingrímur ekki þreyttur á kjaftæðinu?

Jæja, þá kom útspil ríkistjórnarinnar og Skjalborgin kominn. Var ég vongóður að þarna væri allt að gerast og bjartari tímar framundan. En, nei....þau náðu ENN og AFTUR að klúðra þessu. Þeir sem hafa kynnt sér þetta sjá að langflestar af þessum tillögum eru þannig að verið er að slá á einkenni sjúkdómsins en ekki einu sinni reynt að lækna hann, svona eins og að gefa krabbameinssjúklingi morfín frá upphafi greiningar sjúkdómsins í stað þess að reyna að ná tökum á meininu með réttri meðferð.

Til að skilja þessar tillögur þurfum við að fara tala barnamáli. Ef ég skil rétt þá eru aðstæður eftirfarandi:

í Apríl 2007 tók ég íbúðarlán erlendri mynt upp á kr. 9.100.000. Samkvæmt bókum Landsbankans stendur það í dag í tæpum 22.000.000. Hvað gerðist eiginlega? Ég hef alltaf staðið í skilum og verið öllum lántökum til eftirbreytni. Eru menn ekki sammála um forsendubrest? Að sjálfsögðu átti maður ekki að taka svona lán en verðtryggð íbúðarlán voru svo ÓGEÐSLEG í eðli sínu að lánveitandinn mælti með fjármögnunarleið í erlendri mynt. Búið og gert. Nú ætlar Steingrímur og Jóhanna að standa við loforð um Skjaldborg og komu með þessa úrlausn í síðustu viku. Sú lausn þýðir að ef Landsbankinn ætlar að leiðrétta höfuðstólinn vegna forsendubrestsins að þá ætla Skjaldborgin í staðinn að ganga að mér og minni fjölskyldu með því að skattleggja leiðréttinguna? Er þetta rétt? Er þetta ég að misskilja eða...?

Ég veit ekki um þig sem lest þetta, en ef einhver er orðin þreyttur á kjaftæðinu þá er það ég!


mbl.is Afskriftir verða skattlagðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. er ekki einn um það að vera þreyttur á kjaftæðinu!

523968.jpgÞessi frétt hér á mbl.is um frétt sem var flutt á Stöð 2 í kvöld er ekkert kjaftæði. Kjaftæðið kemur oft frá þeim sem ekki hafa efni slíku. Þarna er Guðjón Ragnarsson í hlutverki Ragnars Reykás og er tvísaga. Ef ekki, þá er ekkert til sem heitir að vera tvísaga. Slíkar yfirlýsingar fær mann til að sýna sínar slæmu hliðar. Þetta er ekki til eftirbreytni, finnst ykkur?

Þeir sem vilja sjá orginal skjalið frá honum geta fengið  Orginal skjalhér! 

Frétt Stöðvar 2 um málefnið - smellið hér -

 

 

 


mbl.is Telur sig ekki hafa verið tvísaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Við verðum að standa vörð!

Eftir að hafa kosið sl. Laugardag um Iceasve þvæluna, fór minn maður niður Laugarveginn og á Austurvöll með skilti í hönd. Þetta er fyrsta skipti sem ég geri slíkt og var alls ekkert svo erfitt. Hinsvegar var sorglegt að sjá meðvitundarleysi íslendinga, því þarna voru aðeins mættir um 1000 einstaklingar. Hvað þarf til þess að fólk hættir að rúnta í bílunum og fara standa vörðinn. 

 Karlinn sjálfur í grænu úlpunni - "Defend our homes"

althingi_gotunnar_968854.jpg

 

 

 

 


Samviskusamur og siðlaus einstaklingur er hættulegur samfélaginu

Nú þegar styttist í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu er eins og það séu að verða tímamót. Fólk sem ekki hefur látið í sér heyra er nú staðið upp. Hverju er að kenna? Ég held að það sé hægt að fullyrða að almenningur er alveg komið með upp í kok af því siðleysi sem er í gangi innan stjórnsýslunnar, aðgerðir fjármálastofnanna gangvart fjármagnseigendum og sukkið sem þessu öllu fylgir.

Sem dæmi eru allir starfsmenn Landsbankans í miklum ham að hámarka verðgildi þeirra krafna sem þeir eiga hingað og þangað. Ástæðan er að starfsmönnunum eru borgaðir bónusar fyrir slíkt og hef fengið það staðfest.

Þannig gengur sú saga að bílaleigan Hertz hafi verið seld ágætum mönnum með það í samningi að þeir versli aðeins bíla frá Toyota. Þannig hafi bankinn hámarkað virði sinna krafna í Hertz og Toyota á sama bretti. Allt á kostnað óeðlilegra samkeppnishátta, allt á kostnað neytandans. Hins vegar vona ég að þessi síðasta saga sé ekki á rökum reyst því slíkt væri einfaldlega siðlaust.

Ég hvet þig sem þetta lest að smella á þennan link til þess að kóróna þetta allt saman.

http://gandri.com/?p=841

Hvaða einstaklingur ætli sé með þeim alræmdustu fyrir það að vera bæði siðlaus og samviskusamur?

Adolf Hitler?

En íslendingur?


Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband