Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Gæsveiði er frábært sport

Skotveiði sameinar okkur feðgana og undirbúningur hverjar ferðar er stór hluti. Að fara síðan út á tún eða upp á heiði með byssuna er frábært, að ná fugli er algjör bónus. Hinsvegar eru til veiðimenn með veikleikann drápseðli sem aðaldrifkraft. Þeir sem eru haldnir þessum veikleika eru mjög líklegir til að skjóta allar tegundir fugla, þ.m.t. Blesgæs. Allir sem stunda þessa veiði vita að nú eru stór svæði í útleigu og hef ég áreiðanlegar heimildir að leigan sé allt frá 300.000 til 800.000. Þessir leigutakar skaffa veitingahúsum villta bráð í hinu vinsælu villibráðarhlaðborð. Þannig svala þeir sínu drápseðli og fjármagna sína veiði. Hinsvegar vita líka allir veiðimenn sem skotið hafa á suðurlandi 70-80% af veiðinni er Blesgæsaveiði. Nú var hún fyrst friðuð í fyrra og því ekki kominn mikil reynsla á hversu vel menn virða þessa friðun. En almenn skynsemi segir mér að menn sem hafa það markmið að fjármagna skotveiði með sölu, eru einnig haldnir drápseðli láti á auðveldan hátt undan þeirri freistni að skjóta Blesgæs. Þess vegna verðum við skotveiðimenn að smita út frá okkur að virða þessi bönn áður en alþingismenn og ráðamenn fari alla leið og setji lög, þannig missum við skotveiðimenn stjórnina á sportinu. Við getum spurt okkur hvernig við skotveiðimenn mundum haga okkur ef við værum golfarar. Það sport stunda ég líka og þar er treyst á sportmanninn að hann geri rétt. Það er gert til að komast hjá svokölluðu forgjafarsvindli. 

Einnig vona ég að bændasamtökin geri nú eitthvað frumlegt og búi til einhvern gagnagrunn þar sem bændur geti á auðveldan hátt auglýst veiðileyfi, eða á einhvern hátt leitt saman veiðimenn og þá bændur sem vilja nýta sína auðlind á sama hátt og þeir gera í dag í lax- og silungsveiði.  


mbl.is Áhyggjur af blesgæs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja...er tími kominn til að blogga á ný

Vorið og sumarið gerði það að verkum að ég hætti að blogga, bætti á mig nokkrum kílóum og við fluttum úr vesturbæ Kópavogs í austurhlutann. Nú er minn maður kominn í Herþjálfun með blóðbragð í munninum. Nú refsar maður sér illilega fyrir kæruleysið. Nú er veturinn í nánd og þá förum við íslendingar að kveðast á í gegnum bloggið. Það allra heitasta er Land Rover í innkeyrslum, HB hættur við að fara út á skaga og lömbin okkar krydduð lifandi. Allt á fullu í efnahagslífinu, bankarnir að verða óðir í lífstíl ríka og fræga fólksins. Eitt það áhugaverðasta í pólitíkinni er hversu glataðir framsóknarmenn eru í stjórnarandstöðu. Þeir hefðu bara átt að halda sér í stjórn....já þetta verður bara gaman í vetur.

 


Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband