Leita í fréttum mbl.is

Forseti ASÍ í stjórn félags á Tortola eyjum!

Þessi frétt á Visir.is batt endann á þvæluna. Það er spurning hvort nafnanefnd leyfi okkur að breyta nafninu á landinu okkar í Sikileyjar Norðursins.

Frétt af Visir.is segir; "

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sat í stjórn fjárfestingarfélags í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög í skattaparadísinni Tortola. Það var aldrei nein starfsemi í félaginu segir Gylfi sem segist ekki hafa vitað að Tortola hafi blandast inn í stofnun félagsins.

Félagið Motivation Investment Holding var stofnað í Lúxemborg árið 2000 og sá Kaupþing í Lúxemborg um að stofna félagið. Það gerði bankinn í gegnum tvö félög sem skráð eru á eyjunni Tortola.

Félögin heita Waverton Group Limited og Starbrook International Limited og komu margoft við sögu þegar Kaupþing stofnaði félög í Lúxemborg. Félögin lögðu svo fram 2,5 milljón íslenskra króna í stofnfé á hinu nýja félagi Motivation Investment Holding.

Endurskoðandi félagsins var Rothley Company Limited sem er skráður til heimilis í Road Town á Tortola. Endurskoðunarfyrirtækið og stofnfélögin hafa sama pósthólf á Bresku Jómfrúareyjunum.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, var einn af fimm skráðum stjórnarmönnum Motivation Investment Holding.

Í samtali við fréttastofu segir hann að þegar félagið hafi verið stofnað hafi hann gegnt stöðu framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags Alþýðubankans.

Félagið starfaði á innlendum fjárfestingarmarkaði og átti m.a. hluti í Hugviti. Til hafi staðið að bjóða starfsmönnum þess upp á kaupréttarsamninga og hafi sú leið verið valin að stofna félag í Lúxemborg þar sem Hugvit var með starfsmenn víða um Evrópu.

Staðsetningin hafi verið valin til að gæta jafnræðis meðal starfsmanna. Gylfi segist ekki hafa haft vitneskju um að eyjan Tortola hefði blandast inn í stofnun félagsins.

Aldrei hafi verið nein starfsemi í félaginu en það var leyst upp í febrúar á síðasta ári."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver trúir manninum, það að vera í stjórn félags og segja ekki vita hvaðan stjórnin er komin frá, því miður trúi ég ekki manninum, hef verið í viðskiptafélagi og þeir sem eru í stjórn vissu allt 100% þannig er það bara að menn í stjórn hvers félags vita 1005 hvað var í gangi, og engin starfsemi í félaginu segir maðurinn  og samt hefur félagið verslað fyri tuga og hundruð milljóna króna í ýmsum bréfum...

Gylfi þarf greinilega að segja af sér annað er ekki skinsamlegt upp á framtíðina.....

Tryggvi Bjarnason (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 12:07

2 identicon

Sammála Tryggvi. Auðvitað á hann að segja af sér - STRAX ! Í siðuðum löndum hefði hann verið látinn taka pokann sinn, en Ísland telst ef til vill ekki til siðaðra landa í fjármálastarfsemi í dag ?

Margrét (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 12:16

3 Smámynd: Snorri Magnússon

"Afsakiði meðanað ég æli" skrifaði meistari Megas í Paradísarfuglinum!  Ég held að þessi stutti texti úr þessu frábæra lagi eigi ákaflega vel við í þessu sambandi.

Saktmóðigur komst einnig ákaflega vel að orði í lagi sínu "Sjúpangið":

"Hommar og hórur á Hlemmi,
rónar og ræflar í Austurstræti
daunninn af fórnarlömbum þjóðfélagsins
stígur upp af strætum þess
ég geng þar um og held fyrir nefið,
ég á bara leið þar um.
Róni biður mig um pening, mig rjóma samfélagsins
ég hef ekki geð í mér að eyða í svona pakk."

~ Sjúpangið - Saktmóðigur.

Þessi frétt minnir mig á umfjöllum um þennan ágæta mann í "Vinnunni" tímariti Alþýðusambands Íslands, 1. tbl. 58. árg. bls. 13.  Með viðtalinu birtust fjórar myndir: ein af forsetanum á skíðum við upphækaða (að því að mér sýnist) Nissan Patrol jeppann sinn, ein af honum í klettaklifri, ein af honum e-s staðar í útlöndum með fjölskyldunni og sú síðasta af honum með "þann stóra" í e-i laxveiðiánni...

Þessi sami maður, sem á að vera að berjast fyrir réttindum alþýðufólks á Íslandi, er svo á sama tíma einn af fimm stjórnarmönnum í e-u fáránlegu skúffufyrirtækinu á Tortola eyjum og þykist ekkert vita um málið!!!

Snorri Magnússon, 12.9.2009 kl. 13:38

4 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Þegar að menn berjast fyrir inngöngu í ESB í boði sossana hvað haldið þið að verði gert ? Nákvæmlega ekki neitt enda maðurinn í vernduðu umhverfi sossana!!!svo kalla menn sig verkalýðsforseta.Hann ætti frekar að kallast útrásarvíkinga sleikja :)))

Marteinn Unnar Heiðarsson, 14.9.2009 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband