Leita í fréttum mbl.is

Er til einskonar "læknamafía" á Íslandi?

Í fréttum á Ras1 í kvöld var fjallað um óánægju lækna með starfsmenn lyfjaverslananna um að upplýsa sína viðskiptavini um hagkvæma leið í lyfjakaupum. Ekki áttu þeir við þegar starfsmenn benda á samheitarlyf hedlur þegar sjúklingar eiga rétt á svokölluðum lyfjakortum, sem gerir lífið léttara hjá þeim sjúklingum sem þurfa að kaupa lyf í mörg ár. Skýrt var út í fréttum að með því að nýta réttindi sín með lyfjakortum geti viðskiptavinir lyfjaverslana sparað sér tugþúsundir á ári. Hinsvegar eru læknar mjög órhressir með þessa upplýsingagjöf. Það sem læknarnir gleyma er að ef starfsmenn lyfjaverslanna upplýsi sína viðskiptavini ekki, gerir enginn annar það...en er það sem þeir vilja? Getur verið að þetta sé hroki, og einungis brot af þeim hroka sem er í gangi hjá læknasamfélaginu...og hvað eru þeir að pæla? Sagt er að ástæðan fyrir því að ekki sé hægt að hagræða í heilbrigðiskerfinu okkar er að "læknamafían" sé það öflug að þeir ráði nánast öllu, þar á meðal hvaða laun þeir eiga rétt á. Væri ekki nær að spítalarnir væru reknir af flottum buissness fólki en hrokafullum læknum? Samt vil ég árétta að af öllum starfsgreinum ber ég mesta virðingu til lækna. Hinsvegar er greinilegt að læknar eru eins hæfir til sinna starfa og þeir eru margir. Við eigum rétt á því að vita hvaða læknir er færastur með öflugri upplýsingagjöf um læknana sjalfa, hvaða meðferðir eru í boði og hvernig lyf eru vænlegust og ódýrust hverju sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband