Leita í fréttum mbl.is

Hamingjan felst í ferlinu en ekki útkomunni segir Eva Joly

Heimildarþáttur um líf og störf Evu Joly var sýndur á Rúv fyrir skömmu. Þar fengum við að sjá mannlegu hlið þessarar merkilegu konu. Ég hjó eftir því að hún sagði að nautnin og hamingjan í lífinu séu fólgin því þeim skrefum sem við tökum í átt að markmiðum  en ekki með því að klára eða ljúka við það markmið sem fyrir mann er sett. Þetta keyrir þessa kjarnakonu áfram í sinni vinnu og ber ég mikla virðingu fyrir þeim sem hafa þessa skoðun á hamingju og fyllingu í lífinu. Þannig deili ég þessari skoðun með henni en lærði að meta fyrst eftir að ég las bókina Flow: The Psychology of Optimal Experience eftir bandaríska rússan Mihaly Csikszentmihalyi. Þessi bók var kennd í sálfræði  í þeim háskóla sem ég var í í USA. Ég er fullviss um að Eva Joly sé einstaklega heil í sínum skoðunum um málefnum tengdum spillingu og hvítflibba glæpum. Ég hef trú á að þessi kona geti hjálpað okkur. 

Á sama hátt held ég að ákvarðanir og vinna að hálfu stjórnvalda séu vanhugsuð á mörgum vígstöðvum og  ákvarðanir teknar án ábyrgðar vegna kunnáttuleysi. Hvernig stendur á því að við leyfum manni í þeirri persónulegu stöðu sem hann er í til þess að gegna embætti ríkissaksóknara. Hvar erum við stödd? Treystum við Jóhönnu og Steingrími til þess að gæta að hagsmunum heimilanna okkar?


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Sammála þér Haraldur. Þetta er merkilega kona og hrein og bein en jafnfram ákveðin. Einmitt það sem vantar við rannsókn hrunsins.

Það að hlúa ekki stax að aðstöðu Joly og taka í einu og öllu mark á hennar skoðunum og tillögum fær mig til að velta fyrir mér hvað í ósköpunum dómsmálaráðherra sé að pæla. Hún er jú yfir þessum málaflokki. En gott og vel ef Ragna Árnadóttir tekur til hendinni á þessi ríkisstjórn séns. Ef ekki er hún dæmd til fyrirdæmingar og nýjar kosningar verða í haust eftir uppreisn lands og lýðs.

Guðmundur St Ragnarsson, 10.6.2009 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband