Leita í fréttum mbl.is

Samstöðufundur heimilanna á Austurvelli n.k. laugardag. Sýnum samstöðu!!!

SAMSTÖÐUFUNDUR HAGSMUNASAMTAKA HEIMILANNA

Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00

Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu því miður hvergi nærri fullnægjandi.  Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi (um 30%), skulda meira en þær eiga í árslok 2009.  Árið 2007 var um að ræða 7.500 fjölskyldur.  Þetta er 380% aukning.

Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkana gengis- og verðtryggðra lána.  Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni krónunnar.  Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á efnahagshruninu með þessum hætti.

Hagsmunasamtök heimilanna vilja:

* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum

* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð

* Afnema verðtryggingu

* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði

* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda



Ræðumenn:

Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.

Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi



Hljómsveitin EGÓ kemur fram



TÖKUM STÖÐU MEÐ HEIMILUNUM

www.heimilin.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé að þú ert að spyrja hér til hliðar: "Ef þú gætir flutt erlendis, fengið vinnu, komið börnum í góðan skóla, værir þú til í það?" Ég er búin með þann pakka og komin aftur heim á besta stað í heimi Bjó í ESB klikkelsinu... NEVER AGAIN! Sjáumst á Austurvelli

anna (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 18:56

2 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Æi - að hafa Bubba Mortens þarna skemmir svo mikið.  Maður sem spilar  fyrir utan Seðlabanka Íslands og krefst þess að DO víki en segist svo kjósa þann flokk sem Seðlabankastjóri stýrði og stýrir að hluta til enn - kemur algerlega í veg fyrir að ég muni mæta þarna.  Hvað sem sagt verður þá er það það fólk sem kom okkur í þessa stöðu - eignir böðlanna.

Veit að það eru margir sama sinnis og ég - Bubbi Morthensmun fæla frá !!!!

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 21.5.2009 kl. 20:25

3 identicon

Get ekki samþykkt ´comment´no. 1.  Ísland er ekki, alls ekki besta land í heimi.  Það er langt í frá.  Fólk flytur og flýr og kemur oft ekki aftur.  Mannréttindi eru ekki beint í hávegum höfð miðað við ýmis vestræn lönd.   Fari þeir sem fara vilja.

EE elle (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 21:37

4 identicon

Enda eru já svörin að ofan til hægri hliðar heil 72%. 

EE elle (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband