Leita í fréttum mbl.is

Stjórnvöld leiðrétti lán sem tekin voru í erlendri myntkörfu.

Nú er mikilvægt að við öll stöndum vörð um gylliboð og loforð stjórnmálamanna. Hinsvegar eru   mörg málefni kominn á algjört"deadline" og þola ekki lengri bið. T.d. voru fjölmargir sem bitu á agnið hjá bönkunum á sínum tíma með íbúðarlán í erlendri myntkörfu og þau mistök eru að gera mörg þúsund heimila gjaldþrota.

 Eftirfarandi tilkynning kom í dag frá Hagsmunasamtökum heimilanna sem eru ópólitísk samtök sem hafa einungis eitt að markmiði; að heimilin í landinu geti búið við mannsæmandi umhverfi að öllu leiti, núna og í komandi framtíð. www.heimilin.is 

Þetta er tilkynningin:

Hagsmunasamtök heimilanna skora á stjórnvöld að leiðrétta erlend lán áður en þingi er slitið og áður en lánin losna úr frystingu. Leiðréttingin felst í því að boðið verði upp á að breyta lánunum í krónulán frá og með þeim degi sem þau voru tekin.

Þessi áskorun er í fréttatilkynningu frá samtökunum sem einnig benda á að til samræmis við önnur íbúðalán í landinu mætti setja á þau verðtryggingu líkt og á önnur íbúðalán.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En önnur gengistryggð lán eins og bílalán?  Þau er líka inni í skuldum heimilanna.

EE elle (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 21:37

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Nákvæmlega...þar þarf einnig aðgerðir strax!

Haraldur Haraldsson, 1.4.2009 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband