Leita í fréttum mbl.is

Jóhanna Sigurðardóttir nú þegar búinn að svíkja loforð.

Að slá skjaldborg um heimilin hefur einhverja skilgreiningu. Almenn skynsemi segir mér að það þýði að vernda heimilin og að bankar, lánastofnanir geti ekki gegnið á fasteignir fólks, líkt og Frjálsi Fjárfestingarbankinn hefur nú gert. Spurningin er hvort hinir ríkisbankarnir fái einnig heimild til þess að stofna slík leigufélög. Með þessum aðgerðum er skjaldborgar-loforðin brostin og því orð hæstvirt forsætisráðherra ómerk og tómt blaður. 

Hugsið ykkur að þeir sem lána til íbúðarkaupa (útlán) eru með sína vaxtakröfu verðtryggða og að auki tæpa 5% vexti. Á alþjóðamælikvarða eru slíkir vextir skilgreindir sem ofurvaxta-krafa. Síðan hafa bankararnir fasteignirnar sem veð. Ef það gengur ekki að ganga á eignirnar þá er sjálfskuldarábyrgð á láninu þannig að það er gerð krafa á einstaklingin. Sá einstaklingur er síðan hundeltur til 10 ára, eins og lögin eru í dag og hægt að endurvekja kröfur eins lengi og einstaklingur lifir.

En Jóhanna sagði orðrétt; "Verkefnið framundan er fyrst og fremst að reisa við atvinnuvegina og slá skjaldborg um heimilin í landinu, þétta það öryggisnet sem heimilin búa við og við nauðsynlega þurfum á að halda á þessum tímum,“

Ætli þið síðan að kjósa hana áfram til að gæta hagsmuna heimilanna og fólksins í landinu næstu fjögur árin....guð hjálpi okkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband