Leita í fréttum mbl.is

Hagsmunasamtök Heimilanna - við verðum að standa saman!

Nú í kvöld var fundur hjá okkur í Hagsmunasamtökum Heimilanna. Erindi var flutt um stöðu lána og lána- og eignafærslur milli gamla og nýju bankanna. Staðan er mun alvarlegri en við flest gerum okkur grein fyrir. Ef höfuðstóll lána almennings verður ekki leiðréttur eru STERK merki um skelfilegar afleiðingar. Okkar hagkerfi þarf orkuskot. Bandaríkjamenn eru nú fyrst að átta sig á nauðsynlegum aðgerðum. Þær felast ekki í að pumpa fjármunum út í kerfið. Nú fyrst eru menn að átta sig á að hagkerfið sé á blá-brúninni við ennþá meiri hremmingum.

Eina leiðin til að snúa þróuninni við er að lækka höfuðstól lána hjá almenningi og hjá því neyslusamfélagi sem heldur hagkerfum gangandi.

Ef þú ert ekki ennþá meðlimur í Hagsmunasamtökum Heimilanna þá hvet ég þig til að vera með okkur og skrá þig á heimasíðunni www.heimilin.is

Saman getum við öll látið í okkur heyra og barist fyrir þeim tilverurétt sem heimilin á íslandi eiga skilið. Við megum ekki láta vaða yfir okkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hárrétt hjá þér Halli minn.

Oskar Johannesson (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband