Leita í fréttum mbl.is

Tryggvi þór Herbertsson vs. Sigríður Ingibjörg í Kastljósi í kvöld.

Sigríður skilur ekki að hugmyndir eins og Tryggvi og fleiri um framvirkni niðurfellinga á höfuðstólum verðtryggðra lána kostar ekki neitt. Þá voru hennar helstu mótrök hjá Sigríði að sumir þurfa slíka leiðréttingu að sumir ekki. Hvers konar talsmáti er þetta hjá Sigríði? Verðtrygging íbúðarlána eru bundin vísitölu neysluverðs. Vegna rugls og þvælings hjá einstaka mönnum eru allir íslendingar fórnarlömb aðstæðna. Þessi hækkun verður að ganga til baka algjörlega, burt frá því í hvaða skuldastöðu þær eru. Þetta er einfaldlega mál sem snýr að mannréttindum.

Eins og Tryggvi sagði þá er hugmyndin frábær sem upphaf að endanum á þessarar vitleysu sem við almenningur höfum þurft að horfa upp á. Að sama skapi eru hún ekki endanleg lausn.

Sigríður fegrar skýrslu Seðlabankans og talar máli lánastofnanna. Einnig hótaði hún að IMF gæti ekki samþykkt þessa hugmynd....sem var mjög "dúbíus". Þannig er IMF farnir að hóta okkur. Það er pólitískur óþefur af afstöðu IMF því hún fór í Rangars Reikás kúvendingu eftir fund með Stiengrími J.

Sigríður var kjaftstopp þegar hún spurði Tryggva; "ef þú átt peningin þá er það í lagi". Þá svaraði Tryggvi stuttlega....það eru bara venjulegar afskriftir ekki kostnaður....

Nákvæmlega. Hér er verið að tala um leiðréttingu lána en ekki kostnað. Enn og aftur er hagfræðingur eins og Sigríður að grafa undan sinni starfsgrein með slíkum málflutningi. Ég spyr hvar eru hagfræðingar með lausnir? Hvar eru hagfræðingar sem hugsa um hag fólksins í dag?

Þeir sem hafa rök á móti því að færa höfuðstól verðtryggðra lána niður í þá upphæð sem er skapleg, endilega látið mig vita!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Karl

Væri ekki enn betra að afskrifa 25% af öllum lánum? Það munar um hvert prósent. Og þá mundu nokkrir í viðbót bjargast undan gjaldþroti sem myndi spara kostnað. Myndi þessi leið kosta meira en 20% prósent leiðin?

Einar Karl, 16.3.2009 kl. 20:36

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Nákvæmlega......hvað % halda menn að séu réttlát? Í mínum huga er það sú breyting sem hefur verið á vísitölunni á einhverju ákveðnu tímabili.

Haraldur Haraldsson, 16.3.2009 kl. 20:39

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ætla að vera þér örlítið ósammála, mér fannst viðtalið hans Sigmars vera mjög gott við þau Tryggva og Sigríði. Er sannfærður um að þau tvö leitast við að finna faglegar lausnir á málum. Hvort sem það er nú 20 eða 25% niðurfelling skulda þá er það athyglisverð nálgun. Hins vegar held ég að Tryggvi sé að tala um lán í Glitni, Kaupþingi og Landsbankanum, hvað þá með þá sem eru með lán í sparisjóðunum, Frjálsa og Íbúðarlánasjóði. Vandamálið við svona nálgun er að málin eru yfirleitt ekki eins auðveld og þau sýnast í fljótu bragði.

Sigurður Þorsteinsson, 16.3.2009 kl. 20:41

4 Smámynd: Einar Karl

Með athugasemd minni var ég raunar að gagnrýna hugmyndir XB og Tryggva, því mér fannst blasa við að hann eða Framsókn hafa ekkert reiknað út hvort þetta gangi svona snyrtilega upp.

Tryggvi fullyrti að þetta myndi ekki kosta neitt, m.ö.o. að nægilega mörgum yrði bjargað, sem ella yrðu gjaldþrota,til að vega upp á móti þeim lántakendum sem fá niðurfellingu en geta staðið í skilum.

Mér finnst þetta ekki ganga upp, bara hreint stærðfræðilega... er að reyna að skilja þetta til fulls.

Einar Karl, 16.3.2009 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband