Leita í fréttum mbl.is

"Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt"

Mér datt í hug að skella þessu bloggi fram eftir að ég fylgdist með ógnvekjandi umfjöllun um bótakerfi VíS trygginga til fjölskyldu sem lentu í þeim hremmingum að lenda í hræðilega umferðaslysi með hræðilegum afleiðingum. Mikið óskaplega held ég að það þurfi að skerpa á lögum gangvart þeim sem vilja stofna og reka tryggingarfélag. Óréttlætið í þessu tilviki gerir mann æfan og óskaplega reiðan út í kerfið. Reiðin getur verið svo mikið að menn missa sig gjörsamlega. ´Sumt fólk þarf einfaldlega ekki áfengi til þess að breytast í svín!

Hugsið ykkur að menn skuli semja texta og skilmála í smátt letur (lögfræðingar) einungis til þess að geta átt auðveldari með að villa fyrir fólki og geta grætt meiri peninga."Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt" er slagorð TM. Hversu villandi haldið þið að slík fullyrðing sé?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Góður pistill!  Þetta er viðurstyggilegt og auk þess rangt reiknað því ef bótafjárhæðin - eða meirihlutinn af henni - væri til á nafni drengsins við 18 ára aldur hans myndi  greiðsla vegna örorku(samkvæmt núverandi reglum TR) skerðast og yrði mun minni en 137 þús kr á núgildi vegna þess hann ætti svo mikið fé!  Hringur lokast!

 Þú tókstu eftir að einmitt þessi svo og svo rangi auglýsingatexti glumdi einmitt við í sjónvarpinu næst á undan Kastljósi!

Hlédís, 19.2.2009 kl. 21:06

2 Smámynd: Davíð Löve.

Er það furða að það sjóði á manni? Hvert sem litið er erum við rænd af allskyns óþjóðalýð sem er lögverndaður í bak og fyrir.

Davíð Löve., 19.2.2009 kl. 22:43

3 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Mér fynnst þessi pistill mjög góður, sjálf varð ég alveg æf þegar ég horfði á þennan umrædda Kastljós þátt. Kerfið hér á Íslandi er ekkert kerfi. Ég bendi á færslu mína VÍS hneykslið /liso.blog.is

Ég er ekki enn búin að jafna mig á reiðinni. Gæti haldið fyrirlestur um þetta mál hér en er að hugsa um að sleppa því.

Elísabet Sigmarsdóttir, 23.2.2009 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband