Leita í fréttum mbl.is

Fons átti FS37 sem varð Stím. Kemur fram í ársreikningu FS38.

Þetta er önnur fléttan sem er spaugileg. Nú fer maður að skilja öll lætin sem Jón Ásgeir og félagar voru með í sambandi við eignarhlut og umráð í Glitni. Til þess var stofnað eingöngu til að hafa aðgang að fjármagni til að geta framkvæmt slíkar fléttur. Hvað höfðu þeir síðan út úr þessu? Jú, með gengisbraski og fléttu-veseni náðu þeir upp skuggalegum hagnaðartölum í ársfjórðungsskýrslum.

Þar með litu þeir vel út í fjölmiðlum og gagnvart öðrum fjárfestum íslenskum sem erlendum. Höfðu þannig aðgang að öðrum virtum fjármálamönnum víða um heiminn. Keyptu síðan hin og þessi fyrirtæki hingað og þangað um heiminn. Í raun voru fjárfestingarnar borgaðar með gervipeningum, eða hlutabréfum sem að lokum stoppuðu hjá Glitni (þar sem bankalínur voru nú lokaðar vegna stöðu hans og  erfiðleikum hjá samstarfsbönkum erlendis), bankann á bakvið flétturnar.

Þetta gerðu þeir allir sem einn, allir bankarnir. Síðan hrundi spilaborgin og eftir sitja þessir menn, nú persónulega sem milljarðamæringar með sína peninga í Sviss  og á móti eftirstóð stór hluti almennings á íslandi í gjaldþroti. 

Fléttugaurunum dettur heldur ekki í hug að taka hluta úr þeim persónulegu sjóðum sem þeir hafa í sviss til að bjarga fyrirtækjum heldur hika ekki við að setja á hausinn, því þar með tapa þeir engu. Nú slaka þeir á úti í löndum í nokkur ár þangað til að þeir byrja aftur. Það er líka eins gott að þeir haldi sig erlendis því að sögn þeirra verða þeir að hafa lífverði hér á íslandi þar sem hótanir gangvart þeim eru víst ansi margar. Ekki er það gott, en mikið ósköp verðum við að gæta okkur á fjárhættufíklum framtíðarinnar.

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/12/06/fons_atti_fs37_sem_vard_stim/

 


mbl.is Fons átti FS37 sem varð Stím
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver a F01 til F37

john (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 16:34

2 identicon

Enda er einn leppurinn hjá Jóni Ásgeiri Jakob Valgeir í Bolungarvík annað hvort farin þaðan eða fer bráðum við Vestfirðingar líðum ekki svona hegðun

Guðrún (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband