Leita í fréttum mbl.is

766 Toyota Land Cruiser til sölu á bilasolur.is - söluverðmæti 3 milljarðar!!!

Í kjölfar forsíðufréttar Fréttablaðsins fór ég til gamans inn á Bilasolur.is og leitaði að Toyota Land Cruiser sem þótti einu sinni flottur stjórnanda bíll, en nú er greinilega Range Rover tekinn við af honum samkvæmt Fréttablaðinu, eða allavega tákn þeirra sem standa sig vel í peningasöfnun.

Þá kom í ljós að akkúrat 766 Toyota Land Cruiser bílar eru á söluskrá og heildarsöluverðmæti 3 milljarðar..17 milljónir..768...þúsund. Meðalverð ca. 4 milljónir, sá dýrasti c.a 9 milljónir og sá ódýrasti undir 2 milljónum.

Við erum nú orðinn 330.000 á íslandi og á síðasta ári seldust ca. 60 Range Rover Sport og ca. 40 Range Rover samkv. sölutölunum bgs.is

Flest okkar (meðal íslendingar) erum ekki í þeirri stöðu að eiga yfir 100+ milljónir á debit kortinu, en má gera ráð fyrir að af okkur 330.000 eiga 2000 manns þessar 100+ milljónir. Þó svo að 300 af þessum 2000 mundu staðgreiða flottustu jeppa í heimi á yfir 15 milljónir þá fyndist mér það ekkert stór mál. Við erum einfaldlega hægt og rólega að breytast úr smáþorpi í meðalstórt fjörbreytt samfélag þar sem ýmislegt gerist og verður til án þess að nágrannar geri sér grein fyrir því.

Ég tel því að 200 Land Rover Range Rover á sölu sé lélegasta forsíðufrétt Fréttablaðsins á árinu og það 31.des. 2007.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Garðarsdóttir

Já hallærisforsíðufrétt.     En í Fréttabl. í gær var klausa þar sem tilkynnt var að Toyota væri nú að afhenda nýjustu týpuna af Land Cruiser jeppum fyrir aðeins 1,9 milljarðisl. kr. (sá ódýrasti er á aðeins 10,7 millur.) Þetta eru fyrstu 200 sem koma til landsins. 

Það er greinilegt að það þarf að skipta álíka oft um jeppa eins og nærbuxur. Frekar subbulegt að vera í sama jeppanum ár eftir ár.

Gleðileg brotajárns ár!

Jóhanna Garðarsdóttir, 31.12.2007 kl. 12:13

2 identicon

Þetta er merkileg og mögnuð frétt. Skil ekki þessa neikvæðni :-)

http://donpedro.typepad.com/pedro/2007/12/gar-frttir.html

DonPedro (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband