Leita í fréttum mbl.is

Heldur Bónus uppi matvælaverði

"Sönn saga af Baugsmálinu" 

 Heildsalinn: 

Sæll herra innkaupastjóri Bónus. Ég er hérna með tannkrem á mjög góðum kjörum fyrir þig. Ertu til í að setja það í hillur hjá þér.

Bónusgaurinn:

Ekkert mál, hvað geturðu borgað mikið með vörunni?

Heildsalinn:

Ha?

Bónusgaurinn:

Heyrirðu illa? Hvað getur þú borgað mikið með vörunni.

 

 

Einnig er þessi staðreynd frábær.

Innkaupastjóri Bónus:

Ring...ring:

Er þetta sölustjóri Pepsi

Sölustjóri:

Já....hvernig get ég aðstoðað

Bónus innkaupastjóri:

Ég tók eftir því í blaðinu í morgun að Krónan sé að selja 2 lítra af pepsi á 55 krónur. Það er lægra en innkaupsverðið hjá mér. Hvernig stendur á þessu?

Sölustjóri Egils:

Bíddu...ég veit ekki...þeir ráða sinni verðlagningu...ég get svo svarið það að þú ert með besta innkaupsverðið á öllu íslandi. Þeir eru að borga með vörunni...það er á hreinu!

Innkaupastjóri Bónus:

Viltu stöðva þetta tilboð hjá þeim í snarheitum annars minnka ég hyllupláss hjá þér um 50% og hætti að selja Egils Kristall í öllum búðunum mínum.

Sölustjóri Egils:

Allt í lagi.. ég redda þessu!!!

 

Konan í Kópavogi: Sko...ég skal sko láta þig vita að ég versla hvergi annarstaðar en í Bónus...þetta er einu mennirnir í samfélaginu sem hugsar um okkur hin sem höfum minna á milli handana!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er nefnilega það!

Þú ert skemmtilegur náungi, Haraldur, og Davíð tekur sig vel út hérna síðunni hjá þér.

Jón Valur Jensson, 11.3.2007 kl. 00:26

2 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Afhverju fór tannkremssalinn ekki bara í krónuna og seldi tannkremið þar ? Gat verslunarstjóri Bónus ekki látið sér detta í hug hvað væri í gangi með Pepsi-ið fyrst hann gat sjálfur verið að selja mjólkurlítrann á 1 kr ? Bara pæla. Flott síða og magnaðar myndinar á skjalinu fyrir neðan.

Tómas Þóroddsson, 11.3.2007 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson

Höfundur er Markaðsfræðingur/ Sálfræði frá Middle Tennessee State Univeristy (mtsu.edu).

Fæddur í Reykjavík 1971 og ólst upp í Garðabæ. Giftur Bergdísi Eysteinsdóttur sérkennslukennara. Eigum eina dóttur, Birtu Björk Haraldsdóttur fædd 2001.

Nærist á því að vera í kringum gott fólk og hef skýr lífsgildi um heiðarleika, kærleika.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband